Sjónræn tónlistarhátíð í fyrsta sinn Gunnar Leó Pálsson skrifar 18. desember 2013 10:00 Curver Thoroddsen kynningarstjóri hátíðarinnar, ásamt Írisi Stefánsdóttur, framhvæmdarstýru hátíðarinnar. fréttablaðið/pjetur „
Þetta er í fyrsta skiptið sem hátíðin er haldin hér á landi og við stefnum á að þetta verði stærsti viðburður í sögu sjónrænnar tónlistar og abstrakt kvikmynda hér á landi og þó víðar væri leitað,“ segir Curver Thoroddsen, kynningarstjóri hátíðarinnar, Reykjavík Visual Music Festival. Skilgreining á hugtakinu, sjónræn tónlist á aldarafmæli og að því tilefni var stofnuð Miðstöð sjónrænnar tónlistar en hun stendur fyrir hátíðinni. „Sjónræn tónlist er í raun nokkurs konar samblanda tónlistar, myndlistar, hreyfimynda og grafískrar hönnunar. Hugtakið hefur ekki verið mjög þekkt hér á landi en er að sækja í sig veðrið,“ útskýrir Curver. Um er að ræða mikið sjónarspil fyrir áhorfandann, þar sem sem tónlist og myndlist eða hreyfimynd, mynda sameiginlega heild. Meðal dagskrárliða á hátíðinni eru sjónrænir tónleikar með heimsþekktum listamönnum á borð við Ryoji Ikeda sem er mjög stórt nafn í allri raftónlist, tilraunatónlist og myndlistarheiminum og Ryoichi Kurokawa. Á opnunartónleikum hátíðarinnar verða nokkur verk frumflutt sem sérstaklega voru samin fyrir hátíðina. „Það er mikill fengur að fá hingað til lands listamenn á borð við Ryoji Ikeda og Ryoichi Kurokawa. Samstarf íslenskra og erlendra listamanna verður einnig í hávegum haft. Anna Þorvalds og Sigurður Guðjónsson vinna saman að verki og Hugi Guðmundsson vinnur með Bret Battey,“ bætir Curver við. Hátíðin, sem fram fer í Hörpu 30. janúar til 2. febrúar, er samstarfsverkefni Reykjavík Center for Visual Music og Punto y Raya, sem er abstrakt kvikmyndahátíð á Spáni, sem nú verður haldin í fimmta sinn. „Miðstöð sjónrænnar tónlistar bauð Punto y Raya að halda hátíðina sína á sama tíma hér á landi,“ segir Íris Stefánsdóttir, framkvæmdarstýra hátíðarinnar. Þá er hún einnig haldin að hluta til í samstarfi við Myrka músíkdaga. Samhliða atburðunum í Hörpu opnar sýningin Hljómfall litar og línu í Listasafni Reykjavíkur og 2014 Punto y Raya akademían mun bjóða upp á vinnustofur fyrir nemendur, þar sem virtir fagmenn á sviði hreyfimynda og sjónrænnar tónlistar kenna.Miðasala á hátíðina fer fram á harpa.is, bæði er hægt að kaupa miða á alla hátíðina og á staka atburði. Nánari upplýsingar má finna hér. Reykjavík Visual Music · Punto y Raya Festival 2014 | Teaser from Punto y Raya Festival - dot&line on Vimeo.
Mest lesið Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Lífið Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Lífið Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun 50+: Að hætta að vera þjónustumiðstöð fullorðinna barna Áskorun Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Lífið Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Lífið Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par Lífið Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Stjörnulífið: Laumugifting í helli Lífið Fleiri fréttir Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Sjá meira