Áhrif niðurfellingar skulda vanmetin Óli Kristján Ármannsson skrifar 12. desember 2013 07:00 Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri og Már Guðmundsson seðlabankastjóri sátu fyrir svörum á kynningarfundi vegna vaxtaákvörðunar í gær. Fréttablaðið/GVA
Áætlanir ríkisstjórnarinnar um skuldaniðurfellingu auka innlenda eftirspurn og verðbólgu. Að öðru óbreyttu kallar þetta á hærri vexti. Þetta kom fram í máli Más Guðmundssonar seðlabankastjóra á kynningarfundi vegna stýrivaxtaákvörðunar peningastefnunefndar í gær. „Allt sem að eykur innlenda eftirspurn og verðbólgu leiðir til þess að öðru óbreyttu að vextir verða hærri en ella,“ segir Már. Í yfirlýsingu Peningastefnunefndar, sem þó ákvað að halda stýrivöxtum Seðlabankans óbreyttum, kemur fram að aukin eftirspurn í kjölfar skuldaaðgerðannakomi til með að auka innfluting og draga úr viðskiptaafgangi sem stuðli að lægra gengi krónunnar en ella. „Vegna þess að slakinn í þjóðarbúskapnum er óðum að hverfa mun meiri eftirspurn auka verðbólgu að óbreyttu taumhaldi peningastefnunnar.“ Kröftugri efnahagsbati og ofanaðgerðir stjórnvalda í skuldamálum eru að öðru óbreyttu sagðar krefjast þess að taumhald peningastefnunnar verði hert hraðar en áður hafði verið búist við. „Að hve miklu leyti aðlögunin á sér stað með breytingum nafnvaxta Seðlabankans fer eftir framvindu verðbólgunnar, sem ræðst að miklu leyti af þróun launa og gengishreyfingum krónunnar,“ segir í yfirlýsingu peningastefnunefndar. Þá kom fram í máli seðlabankastjóra í gær að sérfræðihópur ríkisstjórnarinnar hafi líkast til vanmetið áhrif skuldaniðurfellingarinnar á efnahagslífið. Már segir Seðlabankann vinna að eigin mati, auk þess sem bankinn komi einnig að athugasemdum við frumvarp sem lagt verði fram á Alþingi. „Ég held hins vegar að það sé óhætt að segja að okkar mat verður að einhverju leyti annað en það sem kom fram í skýrslu Analytica. Ég ætla ekki að fara í neinn palladóm um þá skýrslu en við munum auðvitað hafa miklu meiri tíma til að gera þessa úttekt.Við erum með miklu þróaðra líkan til þess að meta áhrifin,“ segir Már. Bent er á í umfjöllun Greiningar Íslandsbanka að vöxtum hafi nú verið haldið óbreyttum síðan í nóvember í fyrra. Spáð er vaxtahækkun snemma á næsta ári, í tveimur 0,25 prósentustiga skrefum. „Spáum við því að bankinn hækki vexti sína enn frekar á árinu 2015 og fari þá með stýrivextina upp í 6,75 prósent.“ Varnaðarorð um samninga ítrekuðÍ yfirlýsingu Peningastefnunefndar kemur fram að niðurstaða kjarasamninga muni hafa afgerandi áhrif á verðbólguhorfur og þróun vaxta á næstu misserum. Verði launahækkanir umfram það sem samrýmist verðbólgumarkmiði bankans sé líklegra að vextir muni hækka. „Undir þessum varnaðarorðum eru aðilar vinnumarkaðarins að takast á við erfiða kjarasamninga,“ segir í umfjöllun Greiningar Íslandsbanka. Bent er á að Samtök atvinnulífisins vilji semja á þeim nótum sem Seðlabankanum hugnast á meðan væntingar í baklandi Alþýðusambansins séu um hækkun lægstu launa í blandaðri leið prósentu- og krónutöluhækkana. Samningum hefur verið vísað til sáttasemjara.
Mest lesið Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent