Erlendur maður áreitir íslenskar stúlkur Kjartan Atli Kjartansson skrifar 12. desember 2013 09:00 Áslaug Arna fékk mikinn fjölda skilaboða frá þessum bandaríska manni. „
Að einhver geti komist svona nálægt manni á netinu er mjög sérstakt. Maður var orðinn svolítið var um sig og farinn að hugsa um hvað hann myndi gera næst,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir laganemi, sem lenti í því að bandarískur maður fékk hana á heilann og áreitti hana upp að því marki að hún þurfti að eyða ákveðnum forritum úr símanum sínum. „Ég byrjaði að ræða þetta við vinkonur mínar og þá komst ég að því að hann var búinn að sigta út fleiri stelpur sem lentu í þessu sama,“ útskýrir Áslaug. Hún segir að í fyrstu hafi hann verið ákaflega kurteis og forvitinn um land og þjóð. „Hann byrjaði að fylgja mér í gegnum Instagram-forritið og hafði svo samband við mig á Facebook. Þá var hann að spyrja svona týpískra túristaspurninga. Ég svaraði honum ekki í fyrstu, en hann ítrekaði spurningar sínar og þá ákvað ég að svara þremur eða fjórum slíkum,“ segir Áslaug. Við það virðist maðurinn hafa komist á bragðið. „Hann fór að senda mér skilaboð oft á dag og ég stillti Facebook þannig að ég fengi ekki tilkynningu í hvert sinn sem hann sendi. Við það reiddist hann mjög og fór að kalla mig öllum illum nöfnum.“ Áslaug segist hafa áttað sig á hversu alvarlegt málið var þegar maðurinn bjó til Youtube-myndband þar sem hann spurði hana persónulegra spurninga.„Hann var greinilega búinn að vinna heimavinnuna sína og spurði mig mjög persónulegra spurninga. Þá sá ég manninn og gerði mér betur grein fyrir því að hann á bágt,“ útskýrir Áslaug. Hún segir manninn hafa sent sér fjölda mynda af daglegu lífi. Hann komst svo yfir símanúmerið hennar og hóf að hringja í hana í gegnum forritið Viber, sem er gjarnan notað í millilandasímtöl. „Hann hringdi og sendi mér skilaboð mörgum sinnum á dag. Hann sendi mér talskilaboð sem voru þrjátíu sekúndur hvert og þau komu í massavís. Ég stillti Viber líka þannig að ég fengi ekki tilkynningar þegar hann hefði samband, en á endanum var þetta orðið svo mikið að ég þurfti að eyða forritinu,“ sem Áslaugu þykir slæmt því hún noti forritið mikið til þess að hafa samband við vinkonur sínar sem eru búsettar erlendis. „Hann hefur áreitt fleiri stelpur. Hann kallar sig Scandinavian12 á Instagram og fylgist næstum því bara með íslenskum stelpum. Ég hef heyrt af stelpum sem hafa lent á spjalli við hann og talað við hann lengi. Ég ráðlegg stelpum að svara honum ekki. Ég held að það hafi verið mistökin sem ég gerði. Ég svaraði honum einu sinni og hann var með mig á heilanum í margar vikur.“
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Fleiri fréttir Ljúfsárt að opna loks nýtt og stærra Kvennaathvarf Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot Sjá meira