Ganga í það heilaga 11.12.13 klukkan 14:15 Elimar Hauksson skrifar 11. desember 2013 07:00 Jónbjörn og Kolbrún bjuggu til skemmtilegan brúðkaupsvegg í aðdraganda stóra dagsins. Mynd/Daníel „
Tímasetningin var engin tilviljun og þetta var allt útpælt,“ segir séra Sigríður Guðmarsdóttir, sóknarprestur í Grafarvogskirkju. Hún mun í dag gefa saman þau Jónbjörn Valgeirsson og Kolbrúnu Dögg Arnardóttur. Athöfnin fer fram klukkan 14.15 í dag og er niðurstaðan því skemmtilega talnaröðin 11.12.13.14.15. Séra Sigríður segir þetta ekki í fyrsta skipti sem sóknarbörn hennar velji brúðkaupsdag eftir talnarunum og mætti jafnvel segja að hún sé þaulreynd í þeim efnum. „Ég gaf saman tvenn hjón 10.10.10 og 12.12.12. Auk þeirra var ég með eina giftingu 11.11.11.,“ segir Sigríður og bætir við að almennt sé mikið að gera hjá prestum á þessum dögum, sérstaklega ef þá ber upp á helgi. Brúðurin segir daginn vera þýðingarmikinn þar sem árið í ár sé þeirra sextánda ár saman. „Okkur fannst við hæfi að velja þennan dag þar sem við lokum talnarununni,“ segir Kolbrún. Hjónaefnin eru bæði Reykvíkingar og búa í Grafarholti. Kolbrún segir Hafnarfjarðarkirkju hafa orðið fyrir valinu eftir nokkrar vangaveltur, meðal annars með hliðsjón af veðri. „Það þurfti að finna kirkju þar sem snjór og slabb myndu ekki setja mikið strik í reikninginn. Fríkirkjan var bókuð þennan dag og strax í vor var ljóst að dagurinn yrði jarðarfarardagur í Dómkirkjunni. Við enduðum á að velja Hafnarfjarðarkirkju og erum mjög ánægð með hana,“ segir Kolbrún. Það er augljóst að mikil hugsun liggur að baki dagsetningunni sem varð fyrir valinu auk þess sem skipulag þurfti til að finna brúðkaupinu heppilegan stað á þessum árstíma. En hvernig er það að halda brúðkaup í miðri viku? „Það var ekkert mál. Fólk tók sér að sjálfsögðu bara frí. Við erum búin að hanga svo lengi saman að það eru allir mjög fegnir að við séum loksins að löggilda okkur,“ sagði Kolbrún glöð í bragði þegar Fréttablaðið hafði samband við hana.Löng bið eftir næstu talnarunuNokkuð hefur verið um skemmtilegar dagsetningar fyrir viðburði síðasta áratuginn. Til dæmis má nefna að mikið var um brúðkaup á dagsetningunni 7.9.13. Langt er þangað til sambærileg talnaruna kemur upp og gætu áhugasöm brúðhjón þurft að bíða til 1. febrúar árið 2103 eftir viðlíka talnarunu og er í dag.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Innlent Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Erlent Fleiri fréttir Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Sjá meira