Stefnt að annarri umræðu um fjárlög á morgun Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 11. desember 2013 09:15 Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hittust síðdegis í gær til að fara yfir lokadrög að fjárlagafrumvarpinu. Fréttablaðið/Daniel „
Við ætlum að auka framlög til heilbrigðismála um hátt í fjóra milljarða króna án þess að hverfa frá markmiðinu um hallalaus fjárlög,“ segir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. Fjárlaganefnd Alþingis er að leggja lokahönd á fjárlagafrumvarpið áður en það kemur til annarrar umræðu sem verður væntanlega á fimmtudag. Vinnan snýst að stærstum hluta um að finna peninga í heilbrigðiskerfið. Fjármálaráðherra og formaður fjárlaganefndar tilkynntu fyrir nokkrum dögum að barna- og vaxtabætur yrðu lækkaðar og átti það að spara 600 milljónir króna af útgjöldum ríkisins. Í gær var tilkynnt að fallið yrði frá því að lækka barnabætur og jafnframt var tilkynnt að vaxtabætur yrðu skertar hjá hinum tekjuhærri án þess að búið sé að skilgreina hvað í því felst. Vaxtabætur hinna tekjulægri verða óskertar. Til að mæta þessu verða framlög til ráðuneytanna skert um fimm prósent. „Þetta er um það bil jafn há upphæð og hefði fengist með því að skerða barnabætur,“ segir Bjarni. Einnig er til skoðunar að skerða framlög til þeirra ríkisstofnana sem hafa vaxið hvað mest síðustu ár. Þetta gæti þýtt að störfum hjá hinu opinbera fækkaði á næsta ári. Þá verða framlög til þróunarsamvinnu skert um 700 milljónir króna frá því sem þau eru í ár. Bjarni segir að spáð sé aukinni hagsæld á næsta ári og skatttekjur ríkisins komi því til með að aukast. „Við erum að reyna að hagræða í þágu heilbrigðismála. Það er hægt en það þarf pólitískan vilja til þess og það eru ýmis sjónarmið uppi,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, varaformaður fjárlaganefndar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segir að það verði að tryggja að þær aðgerðir sem ráðist verði í bitni ekki á hinum tekjulágu. Hann segir að ekki sé búið að hnýta alla lausa enda. „Vinna við frumvarpið verður í gangi þangað til það verður tekið til annarrar umræðu í þinginu og frumvarpið getur tekið breytingum á milli annarrar og þriðju umræðu,“ segir forsætisráðherra.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira