Helmingur íbúa skoraði á heilbrigðisráðherra Samúel Karl Ólason skrifar 9. desember 2013 21:01 Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, og Gunnar Ingvi Bjarnason bæjarfulltrúi afhentu ráðherra undirskriftirnar 668 í velferðarráðuneytinu. Mynd/Vesturbyggð
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra fékk í dag afhenta áskorun sem ríflega helmingur allra íbúa Vesturbyggðar hafði skrifað undir. Áskorunin er um að hann falli frá því að fella heilbrigðisstofnun Patreksfjarðar undir Heilbrigðisstofnun Ísafjarðar. „Íbúarnir óttast að með sameiningunni muni þjónusta skerðast og öryggi þeirra verði ógnað. Þá mun sameiningin einnig auka enn á einhæfni í atvinnulífi og fækka atvinnutækifærum. Aðgerðin er í hrópandi mótsögn við fyrirheit ríkisstjórnarinnar um eflingu byggða og mikilvægt hlutverk hins opinbera við að halda úti þjónustu í nærsamfélaginu. Heilbrigðisstofnun Patreksfjarðar er vel rekin og hefur haldið sig innan fjárheimilda undanfarin ár, því er aðför ráðherra að heilbrigðisstofnuninni á Patreksfirði óskiljanleg,“ segir í tilkynningu frá Vesturbyggð. Bæjarstjórn Vesturbyggðar hefur boðist til að yfirtaka rekstur heilbrigðisstofnunarinnar en hefur ekki fengið nein svör. „Sveitarfélagið hefur horft til þess að við yfirtökuna geta orðið til mörg tækifæri í samþættingu þjónustu við íbúa í samstarfi við Félagsþjónustu Vestur-Barðastrandarsýslu sem rekin er sameiginlega af Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppi. Möguleiki er á að auka þjónustustigið og efla faglegt starf með sérhæfðu starfsfólki þar sem horft er heildstætt á hvert mál fyrir sig þar sem heilsugæsla og félagsþjónusta vinna saman að bestu lausn mála. Sá möguleiki verður fyrir bí þegar ákvarðanataka flyst til Ísafjarðar.“ „Þá er sameiningin óskiljanleg í ljósi þess að litlar sem engar samgöngur eru milli Vesturbyggðar og Ísafjarðar 9 mánuði á ári,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Fleiri fréttir Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Sjá meira