Höfum aldrei náð markmiðunum Freyr Bjarnason skrifar 10. desember 2013 12:00 Stefán Ingi segir að miklar framfarir hafi orðið í framkvæmd þróunarsamvinnu.
Stjórnvöld hyggjast draga úr þróunaraðstoð á næsta ári um hundruð milljóna króna. Á síðasta ári nam upphæðin sem lögð var í þróunaraðstoð rúmlega 3,2 milljörðum króna, sem voru 0,22 prósent af vergum þjóðartekjum Íslands. Markmið Sameinuðu þjóðanna er að iðnríkin verji 0,7 prósentum af þjóðartekjum í þágu þróunarríkja. Framlög íslenskra stjórnvalda eru ýmist veitt í gegnum utanríkisráðuneytið eða Þróunarsamvinnustofnun Íslands, meðal annars til félagasamtaka, alþjóðastofnana, háskóla, íslensku friðargæslunnar og samstarfsríkja Þróunarsamvinnustofnunar. Stjórnvöld styrkja alþjóðlegu samtökin Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, á hverju ári og í fyrra nam upphæðin um 130 milljónum króna. „Ísland hefur sett sér markmið um að auka þróunarsamvinnu í samræmi við það sem öll vestræn ríki hafa gert. Við höfum aldrei náð þeim markmiðum,“ segir Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF, aðspurður. „Þeir peningar sem við sendum í þróunaraðstoð hafa verið á bilinu 0,2 til 0,3 prósent sem þýðir að 99,7 prósent af þjóðartekjum fara ekki í þróunaraðstoð. Það er ekkert rosalega stór hluti af þjóðartekjunum,“ segir hann og er hugsi yfir þróun mála. Hann bætir við að miklar framfarir hafi verið á framkvæmd þróunarsamvinnu. „Það hefur náðst mjög mikill árangur, bæði af fjölhliða og tvíhliða þróunarsamvinnu sem Ísland hefur tekið þátt í. Á bak við þetta er fólk sem býr við sára neyð og þarf á hjálp að halda, þannig að þetta skiptir mjög miklu máli.“ Væntanlegar aðgerðir stjórnvalda eru ekki í samræmi við skoðanakönnun sem MMR gerði fyrir utanríkisráðuneytið og Þróunarsamvinnustofnun Íslands fyrr á árinu. Samkvæmt henni vilja tæplega níutíu prósent landsmanna óbreytt eða aukin framlög til þróunarsamvinnu.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Fleiri fréttir Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Sjá meira