Margfalt fleiri bíða eftir hjartaþræðingu Svavar Hávarðsson skrifar 9. desember 2013 07:15 Davíð O. Arnar hjartalæknir segir að nýtt hjartaþræðingatæki, og vonandi fleiri hjartasérfræðingar, muni breyta stöðunni til batnaðar á komandi ári.
Sjúklingum á biðlista sem hafa þurft að bíða í þrjá mánuði eða lengur eftir hjartaþræðingu hefur fjölgað margfalt frá því um mitt ár 2011. Tækjaskortur og mannekla á Landspítalanum er ástæðan. Landlæknir birti upplýsingar um biðlista eftir völdum aðgerðum nýlega. Þar kemur fram að í október höfðu 53% sjúklinga eða 123 alls beðið í þrjá mánuði eða lengur eftir hjartaþræðingu. Þeir voru 76 í júní en 50 á sama tíma í fyrra. Það vekur athygli að eingöngu þrír sjúklingar voru á biðlistanum í júní árið 2011. Í samantekt landlæknis segir að „að sögn starfsmanna Landspítala má einkum rekja ástæður aukins biðtíma til bilunar og úreldingar tækja, sem og manneklu“. „Það er rétt að biðlistinn eftir hjartaþræðingum hefur lengst frá 2011,“ segir Davíð O. Arnar, framkvæmdastjóri lyflækningasviðs LSH. „Þar kemur einkum tvennt til. Annars vegar hefur verið talsverð mannekla meðal hjartasérfræðinga, og þeir læknar sem hafa sinnt hjartaþræðingum hafa einnig þurft að nýtast í önnur verkefni. Hins vegar er annað tækið sem notað er til kransæðaþræðinga orðið 16 ára gamalt sem þýðir aukna bilanatíðni og fleiri viðhaldsdaga,“ segir Davíð. Þetta ástand stendur til bóta, að sögn Davíðs. Nýtt hjartaþræðingatæki hefur verið keypt og verður tekið í notkun snemma á nýju ári. Eins er unnið að því að ráða fleiri hjartalækna til starfa. „Vonandi mun þetta leiða til þess að biðlistinn eftir hjartaþræðingum styttist á næstu mánuðum, segir Davíð sem tekur skýrt fram að ef einkenni fara hratt versnandi hjá þeim sjúklingum sem eru á biðlistanum séu þeir settir í forgang. Sömuleiðis er öllum sem koma inn á sjúkrahúsið með bráðan kransæðasjúkdóm og þurfa hjartaþræðingu af þeim sökum sinnt tafarlaust.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fleiri fréttir Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sjá meira