Stúdentar eru skilvísir Eva Bjarnadóttir skrifar 9. desember 2013 07:45 Stúdentar reynast skilvísir leigjendur en margir bíða eftir að komast að hjá leigufélögum námsmanna. Fréttablaðið/Vilhelm
Almenn ánægja ríkir meðal leigufélaga námsmanna með heimtur á leigutekjum. Reynsla félaganna af vanskilum eftir efnahagshrunið var ólík, þar sem á Stúdentagörðum varð ekki mikil breyting, en hjá Byggingafélagi námsmanna jukust vanskil tímabundið. Leigufélög námsmanna eru þrjú talsins, Stúdentagarðar, Háskólagarðar og Byggingafélag námsmanna. Samtals leigja félögin út um 2.300 íbúðir. „Við dáumst að því hvað íbúarnir standa vel í skilum eftir efnahagshrunið,“ segir Rebekka Sigurðardóttir, upplýsingafulltrúi Félagsstofnunar stúdenta sem rekur Stúdentagarða. „Það kreppir víða að og námslán hafa nánast ekkert hækkað á meðan matur og annað hækkar,“ segir Rebekka. Ástæðuna fyrir góðum skilum segir hún fyrst og fremst vera lága leigu, „Þetta er það sem þau ráða við, þar af leiðandi standa þau í skilum,“ segir hún. Leiga á námsmannaíbúð er á bilinu 50.000-140.000 krónur allt eftir stærð íbúðanna, frá einstaklingsíbúðum til 200 fermetra fjölskylduíbúða. Leiga á almennum markaði er hins vegar afar misjöfn. Í könnun Neytendasamtakanna frá árinu 2011 á leiguverði íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu reyndist leiguverð á tæplega 40 fermetra íbúð vera bilinu 30.000-120.000 krónur. Hjá Byggingafélagi námsmanna jukust vanskil vegna leigu fyrst eftir efnahagshrunið, en dregið hefur úr þeim síðan. Ríflega þriðjungi færri leigjendur lentu í vanskilum í nóvember í ár, heldur en á sama tíma í fyrra að sögn Böðvars Jónsonar, framkvæmdastjóra félagsins. Böðvar segir hlutfall vanskila hafa lækkað jafnt og þétt síðustu tvö ár. „Hluti af skýringunni er að við vorum á tímabili á almennum markaði en erum nú bara á námsmannamarkaði,“ segir Böðvar. Hann segir námsmenn almennt vera skilvísa og að félagið sé með gott innheimtuhlutfall samanborið við önnur leigufélög. Ingvar Jónasson, framkvæmdastjóri Háskólagarða, segir vanskil leigjenda félagsins afar sjaldgæf. Það hafi þó komið fyrir að vanskilamál hafi endað í lögheimtu og fyrir dómstólum. Alltaf biðlistar eftir stúdentaíbúðumMaría Rut Kristinsdóttir, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands, segir húsnæðismálin helsta baráttumál stúdenta. Sama hversu margar stúdentaíbúðir séu byggðar, alltaf séu um 800 stúdentar á biðlista Stúdentagarða. „Eðli málsins samkvæmt er auðveldara að leigja á Stúdentagörðum, en þeir þjóna eingöngu um sjö prósentum stúdenta,“ segir María. Á Norðurlöndum er miðað við að þjóna 15 prósentum stúdenta, sem samræmist samanlögðum fjölda leigjenda á Stúdentagörðum og á biðlistanum.
Mest lesið „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig Innlent Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Innlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Lögreglan lýsir eftir Ernu Athichu Innlent Starmer segir af sér Erlent Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Erlent Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Innlent Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra Innlent Fleiri fréttir „Finnst ég komin heim þegar ég er í Færeyjum“ Íris Edda ráðin sveitarstjóri á Vopnafirði Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Segir upphaf hvalvertíðar vera gleðitíðindi: „Peningarnir detta ekki af himnum ofan“ Lögreglan þakkar öllum sem komu að verkefninu Helmingur óánægður hefði Hildur valið Miðflokkinn Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig 86 prósent horfðu ekki á úrslit Eurovision Ráðherra vill varamótor Herjólfs tiltækan hérlendis Pólitískur ólgusjór í Bretlandi, hvalveiðar og banvæn hitabylgja „Best að taka menn og sekta duglega“ Briddsarar í toppformi leggjast í víking til Ríga Lögreglan lýsir eftir Ernu Athichu Segir ákall frá samfélaginu að gera eins fyrir stelpur og stráka Slagsmál tveggja í Kópavogi enduðu á slysadeild Árásin á Höfðatorgi: Þrír ákærðir fyrir tilraun til manndráps Aldrei fleiri fengið úthlutaða skólavist Kom ekki til skoðunar að gera Land Rover-jeppana upptæka BSO-stöðin komin á nýtt heimili Hrafni bjargað af þaki Byko Hlutu Vigdísarverðlaunin fyrir baráttu fyrir jöfnu aðgengi að þungunarrofi Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Fyrstu hvalirnir skotnir og Starmer segir af sér Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Reiðhjólauppboð lögreglu hefst í dag Fundu kannabisplöntur í húsi á Suðurnesjum Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Sjá meira