Maður er mella í mánuð Símon Birgisson skrifar 7. desember 2013 11:00 Vesturbærinn er heimavöllur Eiríks, þjóðarbókhlaðan, sundlaugin og heimilið. Fréttablaðið/Daníel
Það fylgir ekki mikil sannfæring svarinu þegar ég spyr Eirík hvernig hann hafi það og hann svarar: „Bara ágætlega.“ Kannski er það kuldakastið, snjórinn sem er tekinn að kyngja niður eða myrkrið. „Nei, ég er nú aðallega dapur út af Ríkisútvarpinu,“ segir Eiríkur sem vann á Rás 1 í fjölda ára, flutti pistla í Víðsjánni þar sem músík frá níunda áratugnum og tilvistarheimspeki fengu að njóta sín til jafns. Hann er hættur í útvarpinu, pistlarnir urðu að skáldsögum og nú hefur nýjasta bók Eiríks, 1983 litið dagsins ljós. Horfinn þorpsheimurAf hverju ekki 1984? „Það er nú til bók sem heitir því nafni og er framtíðarsaga. Bókin mín er fortíðarsaga. Hún lýsir horfnum þorpsheimi. Það verða miklar breytingar á íslenskum þorpum á þessum tíma. Segja má að 1983 sé einskonar vendipunktur. Það eru teknar ákvarðanir um fiskveiðar sem breyta samfélaginu. Og án þess að ég sé að skrifa bók um kvótakerfið þá er þetta tímabil sem mig langaði að skrifa um.“Ertu haldinn fortíðarþrá?„Nei, ég held ekki. Ég myndi ekki segja að þesi bók sé beinlínis nostalgísk. Ætli hún sé ekki frekar melankólísk en nostalgísk ef við viljum nota falleg orð. Það er auðvitað ein elsta klisjan í heimi að skrifa þorpssögu en ég vona að mér takist að gera það á annan hátt en áður hefur verið gert. Ég minnist til dæmis varla á fisk nema í myndlíkingum. Ég er að beina sjónum mínum að krökkum og unlingum sem lifa á jaðri samfélagsins. Áherslan er á persónur en ekki fortíðina.“ Þorpssagan á sinn stall í íslenskum bókmenntum. Til dæmis Þorpið eftir Jón úr Vör sem markaði að ákveðnu leiti upphaf módernismans í íslenskum skáldskap. Lýsingar Steinars Sigurjónssonar á Akranesi eða Guðbergs Bergssonar á Grindavík.Hvaðan sækir þú innblástur þinn?„Þetta eru allthöfundar sem ég veit afskaplega vel af. Ég þekki þeirra verk og ber virðingu fyrir þeim. Það er ákveðin áskorun að nálgast efni sem aðrir hafa gert svo vel. Og líka að skrifa um gömlu góðu klisjuna, strák sem verður ástfanginn af ríku stelpunni í þorpinu. Dáist að henni úr fjarlægð. Það var líka áskorun að skrifa sögu þar sem sögumaðurinn er tólf ára gamall en um leið mögulega miklu eldri. Hann vitnar jöfnum höndum í Simple Minds og Albert Camus. Mig langaði að búa til söguhetju sem veit í senn allt og ekki neitt! Lítur hörmulega útHefur rithöfundurinn ráðið niðurlögum fjölmiðlamannsins? „Já, hann hefur verið að taka yfir á síðustu árum. Ég vann alltaf að þessu jöfnum höndum til að byrja með. Skrifaði mikið fyrir útvarpið og sinnti skáldskapnum með. Svo kom að því að mig langaði til að athuga hvort skrif mín fyrir útvarpið gætu jafnvel staðið ein og sér án þess að það kæmi gott lag á eftir. Rithöfundurinn tók bara yfir. Ég hygg ekki á frekari störf á fjölmiðlum í nánaustu framtíð, að minnsta kosti ekki meðan staðan á þeim fjölmiðli sem ég ber mestar taugar til er eins og hún er.Er Rás 1 „rjúkandi rúst“? „Þetta lítur hörmulega út í mínum augum. Það er dimmt ský yfir mann. Ég þekki auðvitað fólkið sem varð fyrir þessu og líka fólkið sem eftir situr með sárt ennið. Þetta hefur mjög mikil áhrif á mann og manni finnst eins og verið sé að gera Ísland en enn óbyggilegra en það var fyrir. Það er verið að eyðileggja eitthvað sem skiptir máli. Stjórnvöld hafa ekki sterkara bein í nefinu en þetta. Vega að Rás 1 og nánast skera hana á hol. Mér finnst það sorglegt, sérstaklega af því við höfum talið okkur eiga efni á að reka menningarstofnanir á borð við Ríkisútvarpið og Þjóðleikhúsið á tímum þegar þjóðin átti varla til hnífs og skeiðar. Þetta svíður óendanlega.“Hvernig er venjulegur dagur í þínu lífi? „Ég vakna á morgnana eins og flestir aðrir. Og reyni að skrifa á hverjum degi. Ég bý í vesturbæ reykjavíkur og ætli það megi ekki segja að mikilvægustu punktarnir í mínu daglega lífi séu heimili mitt, Þjóðarbókhlaðan og Sundlaug Vesturbæjar. Þetta eru svona hornsteinarnir í mínu lífi. Ég er reyndar fæddur og uppalin vestur á fjörðum, í Bolungarvík. Bjó þar til 14 ára aldurs. En ég búið hér í Reykjavík síðan.Líturðu þá á þig sem Reykvíking eða lifir þorpið enn í þér?„Þegar ég bjó fyrir vestan leit ég ekki á mig sem vestfirðing. Og hér ekki endilega sem reykvíking. Ætli ég sé ekki bara klofinn. Ég er ekki mikið fyrir að skilgreina mig. Kannski nú, þegar maður eldist, leitar hugurinn meira til baka. Bernskan er mikilvægasta æviskeiðið.Ættum að reyna að ná sáttNú er bókin þín með hinn svokallaða gullstimpil. Fáein orð um jólabókaflóðið?„Það fylgja þessum tíma blendnar tilfinningar. Það er gaman að hitta höfunda og lesa upp. En svo er maður líka taugaveiklaður og ómögulegur að einhverju leiti. Það er hægt að týna sér í þessu. Einn ágætur höfundur orðaði þetta ágætlega um daginn. Maður er mella í mánuð. Ætli maður þurfi ekki bara að passa sig á að tapa sér ekki alveg í þessu. Svo fylgir þessu auðvitað fjölmiðlaharkið. Það er búið að veikja svo fjölmiðla á Íslandi og menningarumfjöllun í blöðum er minni en hún var. Það er minni umræða um það sem skiptir máli. Og þess vegna er enn sorglegra að vegið skuli að Ríkisútvarpinu á þennan hátt.“Af hverju ríkir ekki meiri sátt um menningu? „Ég hef einmitt verið að hugsa það sama. Það er stórfurðulegt að árið 2013 skulum við vera að standa í þessari umræðu. Þjóðleikhús eða landhelgisgæsla, Rúv eða spítali. Ég skil þetta hreinlega ekki. Við gátum byggt upp grunnstoðir samfélagsins þegar við áttum miklu minni pening. En nú eru öfl á sveimi – raddir sem telja sig geta stillt þessu svona upp. Þetta er bara lýðskrum. Þessi öfl líta svo á að það þurfi ekkert að hlúa að menningunni og því listalífi sem dafnar hér í landinu og gerir landið byggilegt. Svo einfalt er það. En að við skulum þurfa að eiga í þessari umræðu, núna árið 2013, er út í hött. Maður gat kannski skilið það á fjórða áratugnum, í miðri heimskreppu, þegar þjóðin deildi um hvort hún vildi byggja sér Þjóðleikhús. En hér og nú. Það finnst mér algjörlega óskiljanlegt.Jólaboðskapurinn í ár?„Ég held við ættum bara að reyna að ná einhverri sátt um hlutina. Reyna að komast að niðurstöðu um það þjóðfélag sem við viljum tilheyra. Ég held að stærsti hluti þjóðarinnar vilji hafa aðgang að kröftugu Ríkisútvarpi og Þjóðleikhúsi og ég held að það sé alveg mögulegt að ná um það sátt. En það er hræðilegt hvernig umræðan einkennist af skotgrafarhernaði þar sem hver hendin upp á móti annarri. Við sitjum uppi með stjórnvöld sem hafa ekki mikinn áhuga á menningu en ég er svo bláeygður að ég held að sátt meðal þjóðarinnar felist í því að hlúa að þessum stofnunum sem sinna góðu starfi og skipta sköpum fyrir tilveru okkar hér á þessu landi."
Mest lesið Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Innlent Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Innlent „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Innlent „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Innlent Spændi upp mosann á krossara Innlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól Innlent Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Erlent Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Innlent Fleiri fréttir Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Tæpur fjórðungur umræðutímans fór í veiðigjöld Þyrlan kölluð út að sækja veikan farþega á skemmtiferðakipi „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Spændi upp mosann á krossara Netið sló út í miðborginni og Hlíðunum Bræður „moka inn“ á límónaðisölu og egg spælt á bíl Sögulegt þing, geðrof eftir meðferð og bongóblíða Dópsalar handteknir sem reyndust dvelja ólöglega á Íslandi Stjórnarandstaðan sakar forseta um alvarlegan trúnaðarbrest Mótmæltu komu „spilltrar“ der Leyen Hvetja fólk til að fara sparlega með vatn Rak landganginn í flugvélina og gerði gat Þagnarbindindi í ræðustól Alþingis Veiðigjaldafrumvarpið samþykkt „Ísland er með öruggustu löndum í heimi“ Sjá meira