Eggert klæðir breska sjéntilmenn í feldi 6. desember 2013 09:00 Eggert feldskeri og Jeremy Clarkson kynntust á Íslandi fyrir nokkrum árum og hafa æ síðan haldið vinskap. „
Anderson og Sheppard eru taldir með vönduðustu herraklæðskerum í Bretlandi. Þeir sérhæfa sig í afar vönduðum fatnaði og síðastliðin þrjú ár höfum við verið að gera fyrir þá smáhluti,“ segir Eggert Jóhannsson, betur þekktur sem Eggert feldskeri, og á við fylgihluti á borð við húfur. Eggert hélt móttöku í London í vikunni þar sem feldskerinn Eggert og vörur hans voru kynntar fyrir viðskiptavinum Anderson & Sheppard í nýrri verslun þeirra í London. „Nú tókum við skref fram á við með því að kynna mig og mínar vörur fyrir þeirra viðskiptavinum í nýju versluninni,“ segir Eggert jafnframt, en merkið Anderson og Sheppard var stofnað árið 1906 og því með yfir hundrað ára reynslu í klæðskerageiranum. „Ég tek allt í litlum skrefum. Það besta sem gæti komið út úr þessu er það að þetta yrði skref fram á við. Þarna fæ ég að vinna við hlið fólks sem er þekkt fyrir vandaða vöru – með bestu fagmönnum í Bretlandi og það er gríðarlegur heiður fyrir mig,“ segir Eggert léttur í bragði.Hópur af fyrirsætum klæddust fötum frá Eggerti og vöktu mikla lukku.Eins og sjá má á myndum sem fylgja voru margir mættir til að berja flíkur Eggerts augum í versluninni á Clifford Street. „Ég var svo lánsamur að kynnast mörgum úr bransanum hér í Bretlandi í gegnum Adrian Gill, en Jeremy Clarkson þáttastjórnandi Top Gear, kynnti okkur Adrian,“ segir Eggert. Jeremy Clarkson lét sig ekki vanta í gleðskapinn eins og sjá má á myndunum. Adrian Gill sá um að bjóða í teitið, en hann er einn þekktasti og umdeildasti blaðamaður Bretlands og skrifar fyrir blöð á borð við Sunday Times og Esquire.Blaðamaðurinn A.A. Gill og þáttastjórnandinn Jeremy Clarkson eru vinir Eggerts, en þeir sáu um að bjóða gestum til veislunnar.Þessi klæddi sig í flíkur Eggerts frá toppi til táarÞað var margt um manninn og margir sem lögðu leið sína á Clifford Street til að berja flíkur Eggerts augum
Mest lesið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Tónlist Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hvað veistu um… pitsur? Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Lífið Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Fleiri fréttir „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Sjá meira