Eggjastokkum líkt við rotnuð epli Ugla Egilsdóttir skrifar 4. desember 2013 09:30 Helga Kristín eignaðist barn 39 ára gömul og fékk á tilfinninguna að hún væri of gömul. Fréttablaðið/Einkasafn „
Þegar fjallað er um eldri mæður er eins og verið sé að gefa í skyn að þær séu afbrigðilegar,“ segir Helga Kristín Hallgrímsdóttir, dósent í félagsfræði. Hún heldur fyrirlesturinn Þekking er vald: Áhætta og siðferðisleg ábyrgð verðandi mæðra í sögulegu ljósi á Háskólatorgi í dag frá 12 til 13. „Í félagsfræðilegu og læknisfræðilegu samhengi er talað um áhættu. Áhætta þýðir að maður eigi að taka ábyrgð á því sem maður gerir og að maður eigi ekki að gera hluti sem hafa fyrirsjáanlegar hættulegar afleiðingar. Ég eignaðist barn þegar ég var 39 ára og þá fékk ég á tilfinninguna að ég væri of gömul. Það vakti forvitni mína á því hvaðan þetta hugtak „eldri móðir“ kemur, því það er tiltölulega ný hugmynd. Langömmur okkar tvínónuðu ekkert við barneignir þótt þær væru orðnar 35 ára. Mér þótti snjallt að skoða eldri umræðu um þetta.“ Í þessari rannsókn skoðaði Helga Kristín tímabilið 1880-1920 í Kanada. „Á þessu tímabili hætti læknisfræði að einskorðast við meðhöndlun sjúkra og læknar fóru að hugsa um bæði veikt fólk og fólk sem var ekki enn orðið veikt. Þarna breytist hugsunin um meðgöngu. Þá var byrjað að meðhöndla hana sem eitthvað sem var hugsanlega sjúklegt. Hlutverk konunnar var að koma í veg fyrir þessa hugsanlega sjúklegu hluti sem gátu gerst.“ Gögnin sem Helga Kristín notar eru bæklingar sem voru búnir til af læknum fyrir konur að lesa og birtir í Kanada. Í þessum bæklingum fá konur ráð um hvernig þær eiga að koma í veg fyrir sjúklega atburði á meðgöngunni sem þær báru siðferðislega ábyrgð á. Þau atriði sem einkenndu siðferðislega ábyrga hegðun á meðgöngu voru ekki endilega þau sömu nú og þá. „Ég fann ekkert um of háan aldur kvenna í þessum gögnum. Þegar talað var um aldur var talað um að of ungar konur áttu ekki að eignast börn og það var líka ekki gott ef faðirinn var of gamall. Nú til dags er lítið talað um aldur feðra. Kynferði kvenna var oft líkt við ávexti, þegar konur urðu til dæmis 46 ára var eggjastokkunum líkt við rotnuð epli. En samt þótti ekkert slæmt að eiga barnið þótt þú værir komin á þann aldur. Ef þú varst enn þá frjó var allt í lagi að eiga barn.“ Konum var uppálagt að sýna ábyrgð í makavali. „Ef þú giftist manni sem var lélegur til andlegrar heilsu og svo dó hann, en svo áttirðu börn með öðrum manni sem var betri, þá var talið að fyrra hjónabandið hefði varanleg áhrif á æxlunarfærin og það skilaði sér í börnunum sem þú áttir með seinni manninum þótt hann væri gott eintak. Það má setja þetta í samhengi við að á þessum tíma í Norður-Ameríku var mikill áhugi á kynbótum í Bandaríkjunum og þarna höfðu konur það hlutverk að búa til góða þegna með því að gifta sig rétt. Þetta er nokkurs konar tilraun til kynbóta.“ Helga Kristín bendir einnig á að á þessum tíma höfðu konur ekki kosningarétt. „Konur voru gerðar ábyrgar þegar þær höfðu ekkert vald sjálfar. Konur notuðu þessa ábyrgð sína á meðgöngunni til þess að fá kosningarétt, til þess að biðja um meiri þátttöku. Svo hefur meðganga líka verið notuð til að stuðla að sjálfstæðisleysi. Þá er gefið í skyn að þótt þú getir orðið ófrísk þá getirðu ekki endilega orðið móðir. Einhver sérfræðingur þarf að kenna þér að vera móðir. Ábyrgð kvenna á meðgöngu hefur því bæði stuðlað að sjálfstæði kvenna og sjálfstæðisleysi.“
Mest lesið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Lífið Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Fleiri fréttir Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Sjá meira