Veðurstofan spáir allt að 20 stiga frosti Brjánn Jónasson skrifar 3. desember 2013 08:11 Hægt er að mæla frostþol á frostlegi bílvéla á bensínstöðvum og smurstöðvum. Fréttablaðið/GVA
Veðurstofa Íslands spáir miklu kuldakasti á landinu frá miðvikudegi fram á föstudag. Frostið gæti farið í 20 gráður segir veðurfræðingur. Bíleigendur eru minntir á að búa bíla sína undir frostið. „Það er kalt heimskautaloft að síga yfir landið. Það er stór og voldug hæð suður í hafi sem dregur heimskautaloftið yfir landið og veldur þessum mikla kulda,“ segir Þorsteinn V. Jónsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. Frostið mun víða verða á bilinu 10 til 15 stig, og staðbundið mun það fara í 20 stig, segir Þorsteinn. Hann segir að spár geri ráð fyrir því að kuldakastið muni vara fram á aðfaranótt laugardags þegar suðvestanáttin muni færa landsmönnum hlýindi. Sigurjón Bruno, bifvélavirki og tæknistjóri hjá Bifreiðaverkstæði Reykjavíkur, brýnir fyrir bíleigendum að búa bílana undir kuldann. Kanna þarf frostþol á frostlegi á vélinni. Sé frostþolið ekki nóg getur vélin, vatnskassinn og fleira skemmst í frostinu. Þá þarf að gæta þess að rúðuúði þoli nægilega mikið frost. Rafgeymar geta farið í frostinu og raki myndast í gamalli olíu. Hvort tveggja hefur þær afleiðingar að bílarnir fara ekki í gang. Sigurjón segir að fólk sem fari reglulega með bílinn sinn í smurningu þurfi ekki að hafa áhyggjur, en þeir sem hafi sparað sér það undanfarið ættu að drífa sig af stað.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fleiri fréttir Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sjá meira