Vill herða reglur um rannsóknarnefndir Höskuldur Kári Schram skrifar 30. nóvember 2013 11:00 „„Mér finnst það algjörlega galið að Ríkisútvarpið sé að taka upp og stílfæra hér heima einhvern þátt sem gengið hefur í útlöndum [...] Mér finnst þetta ekki vera hlutverk RÚV,“ segir Ragnheiður Ríkharðsdóttir um Vert viss, skemmtiþátt sem hóf göngu sína á RÚv í þessum mánuði. Fréttablaðið/GVA
Kostnaður vegna rannsóknanefnda Alþingis hefur farið langt fram úr áætlun samkvæmt frumvarpi til fjáraukalaga sem lagt var fram á Alþingi í vikunni. Heildarkostnaður er kominn upp í rúmar 800 milljónir en um ræða annars vegar rannsóknanefnd um Íbúðalánsjóð og hins vegar rannsóknarnefnd um fall sparisjóðanna. Sú fyrrnefnda skilaði skýrslu í sumar en sú síðarnefnda hefur enn ekki lokið störfum. Upphaflega stóð til að vinnunni myndi ljúka um mitt ár 2012. Ragnheiður segir nauðsynlegt að endurskoða tíma- og útgjaldaramma í tengslum rannsóknarnefndir. „Það er algjörlega ljóst að við getum ekki leyft okkur, hvort sem við eigum fullt af peningum eður ei, að setja á fót rannsóknarnefndir sem hafa svona víðtækar heimildir til tímafrestunar, til rannsókna og fjármagns,“ segir Ragnheiður og vill að Alþingi skoði málið.. „Það má vera einhver sveigjanleika í tímaramma og einhver sveigjanleiki í fjármagni en ekkki upp á mörg hundruð milljónir.“ Fram kemur í fjáraukalögum að rekstarkostnaður ríkisstjórnarinnar hefur aukist um eitt hundrað milljónir miðað við áætlun núgildandi fjárlaga eða um ríflega 30 prósent. Ríkisstjórnin hefur ennfremur verið gagnrýnd fyrir að fjölga ráðherraembættum og aðstoðarmönnum. Ragnheiður segir að biðlaun fyrrverandi ráðherra skýri þessa hækkun að sumu leyti. „Þessi kostnaður ríkisstjórnarinnar sem ekki var gert ráð fyrir í síðustu fjárlögum eru biðlaun fráfarandi ráðherra og aðstoðarmanna þeirra. Þannig að þetta er ekki eingöngu kostnaður við núverandi ríkisstjórn,“ segir Ragnheiður. Hún telur eðlilegt að sumir ráðherra séu með tvo aðstoðarmenn líkt og Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra. „Þetta er ráðuneyti sem er bæði efnahagsráðuneyti og fjármálaráðuneyti. Aðstoðarmennirnir hafa þekkingu hvor á sínu sviði. Við getum líka horft til innanríkisráðherrans sem er með tvo aðstoðarmenn. Í því ráðuneyti eru sveitarstjórnarmál, dómsmál og innanríkismál. Þannig að það getur verið auðveldara að ná fram hagræðingu innan ráðuneyta ef þar eru sérfræðingar sem koma að málum. Menn verða líka að hafa í huga að þetta er starfsfólk sem fer [að loknu kjörtímabili] en verður ekki eftir í ráðuneytinu,“ segir Ragnheiður.Galinn spurningaþáttur Ragnheiður hefur gagnrýnt spurningaþáttinn Vertu viss sem hóf göngu sína á Rúv í nóvember og hefur tekið málið upp á Alþingi. „Mér finnst það algjörlega galið að Ríkisútvarpið sé að taka upp og stílfæra hér heima einhvern þátt sem gengið hefur í útlöndum [...] Mér finnst þetta ekki vera hlutverk RÚV. Ég hef sagt það upphátt og ég get sagt það hvar og hvenær sem er. Þetta er eitt af því sem verður skorið ef það þarf að draga saman því ekki hefur þetta listrænt eða menningarlegt gildi.“Óheflaðir þingmenn Um 14 prósent landsmanna bera traust til Alþingis samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands sem var gerð í ágústmánuði síðastliðnum. Ragnheiður segir nauðsynlegt að bæta umræðuhefð á Alþingi. Þannig megi auka tiltrú og traust almennings. „Það verður hver og einn þingmaður að velta fyrir sér tungutaki sínu og orðfæri. Um leið og þingmenn gera það þá mun annað fylgja í kjölfarið. Við erum stundum mjög óvægin og óhefluð,“ segir Ragnheiður. Hún vill einnig breyta þingsköpum til að styrkja stöðu stjórnarandstöðunnar á Alþingi og koma í veg fyrir málþóf. „Það verður að finna þannig flöt að stjórnarmeirihlutinn geti ekki bara valtað yfir minnihlutann þegar honum hentar. Mér finnst að það verði að tryggja það með einhverjum hætti að minnihlutinn hafi alltaf það vopn að geta með einhverjum hætti stöðvað mál. Það er nefnilega ekki þannig að öll mál sem koma frá stjórnarflokkunum séu rosalega góð og að minnihlutinn hafi alltaf rangt fyrir sér,“ segir Ragnheiður. Viðtalið við Ragnheiði er hægt að sjá í þættinum Pólitíkin á www.vísir.is
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Innlent Fleiri fréttir Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Sjá meira