„Ég djamma alveg edrú“ Gunnar Leó Pálsson skrifar 29. nóvember 2013 10:00 „
Þegar maður lifir eingöngu á tónlistinni er maður opnari fyrir alls konar verkefnum,“ segir söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir sem hefur verið ansi sýnileg undanfarið á hinum ýmsu viðburðum, einng syngur hún vinsælasta lag landsins um þessar mundir. „Ég drekk ekki, það fer nú eftir því hvernig fólk túlkar það að djamma. Ég djamma alveg edrú,“ segir Jóhanna Guðrún létt í lundu aðspurð um hvort textinn eigi við sig. Lagið, Mamma þarf að djamma eftir Baggalútsmenn, er orðið að nokkurs konar þjóðsöng og ákaflega vinsælt um þessar mundir. „Þetta er hressandi og skemmtilegt lag en ég bjóst nú samt ekki við því að það yrði svona rosalega vinsælt.“ Jóhanna Guðrún segir það hafa verið mjög gaman að vinna með Baggalútsmönnum. „Þeir eru rosalega skemmtilegir og hæfileikaríkir.“ Hún kemur mikið fram með hljómsveitinni um þessar mundir. „Ég kem mikið fram með þeim á næstunni, á alls kyns skemmtunum og mannfögnuðum.“ Þess má til gamans geta að það er orðið uppselt á ellefu tónleika Baggalútsmanna sem fram fara í Háskólabíó og í Hofi. Jóhanna Guðrún hefur einnig talsvert komið fram á dansleikjum undanfarið. „Ég söng aldrei á böllum hérna áður fyrr, enda er ég bara 23 ára gömul, en núna hef ég gert svolítið af því og finnst það rosalega gaman.“ Hún hefur komið fram með hinum og þessum hljómsveitum. „Oftast er bara hringt í mig þegar það vantar söngkonu á dansleiki og ég kem þá inn og tek nokkur lög. Það er eiginlega skemmtilegast að syngja diskóslagarana á böllum.“ Jóhanna Guðrún er ásamt kærastanum sínum, Davíð Sigurgeirssyni, nú að grúska í efni sem gæti litið dagsins ljós á næsta ári.
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Björk og Yara nýtt par Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Sjá meira