Missti tæp fimmtíu kíló með hjálp Facebook Kjartan Atli Kjartansson skrifar 29. nóvember 2013 09:25 Þvílíkur munur Daníel hefur lést um 46,8 kíló á 46 vikum.Myndir/Einkasafn
Daníel Páll Jónasson fór nýstárlegar leiðir í heilsuátaki sem hann fór í fyrr á árinu. Hann notaði Facebook til að hjálpa sér og keypti sér ekki líkamsræktarkort til þess að breyta um lífsstíl. Daníel hefur nú lést um 46,8 kíló og hefur einnig létt mikið á sér andlega. „Ég notaði Facebook sem aðhald. Ég setti inn myndir af mér vikulega og var í keppni um að vera léttari í hverri viku, svo árangurinn myndi sjást. Ég ákvað að vera ekki með öfgakennt mataræði, ég tók í raun enga sérstaka fæðutegund út, bara minnkaði skammtana og borðaði hægar,“ útskýrir Daníel. Daníel segist hafa notað afar náttúrulegar leiðir. „Ég notaði ekki neinar brennslutöflur eða fæðubótarefni. Ég borðaði bara venjulega fæðu en passaði upp á hitaeiningafjölda og kynnti mér næringarinnihald mjög vel.“ Daníel hefur oft reynt að fara í átak en aldrei gengið eins vel og nú. „Ég var kominn með kæfisvefn og þetta var farið að hafa ýmiss konar sálræna og líkamlega kvilla. Ég var í raun búinn að ná botninum. Þegar líkamlegt ástand hamlar svefni er stutt í andlega erfiðleika.“„Ég var kominn með kvíða og leið ekki vel. Ég þurfti einfaldlega að taka mig á. Ég hafði ekki um neitt annað að velja og eftir átakið eru þessir kvillar algjörlega á bak og burt.“ Hann valdi að fara sínar eigin leiðir í átakinu.“ „Ég vildi ekki vera bundinn við að fara í líkamsræktarstöðvar í ákveðna tíma og vera bundinn þannig. Ég ákvað því að fara í mikið af gönguferðum. Ég tók strætó í vinnuna og gekk alltaf heim og um helgar fór ég í langa göngutúra sem gerðu mikið fyrir líkama og sál. Ég byrjaði að ganga því ég gat ekki hlaupið, ég var búinn að rústa öðru hnénu vegna ofþyngdar.“ Daníel finnur skiljanlega mikinn mun á sjálfum sér, enda tæplega fimmtíu kílóum léttari. Af stað hlunkur Daníel líður mun betur í dag en fyrir 46 vikum.„Ég er farinn að geta stundað útivist, hlaupið og farið á rjúpnaveiðar. Ég er farinn að geta gert hluti sem ég gat ekki gert áður. Tilfinningin er alveg hreint frábær.“ Hann segir að fólk þurfi að finna það hjá sjálfu sér hvað virkar fyrir það, vilji það grennast. „Ef ég ætti að ráðleggja fólki eitthvað þá er það að borða einfaldlega minna og minnka skammtana, borða hægar og vakta árangurinn vel. Lítil smáatriði eins og að missa nokkur kíló eða geta þrengt beltið geta skipt miklu máli í að styrkja mann í svona átaki. Ég leyfði mér alveg helling en hreyfði mig mikið í staðinn.“ Hann segir lífið ekki alltaf hafa verið auðvelt á meðan á átakinu stóð. „Þetta var erfitt, ekki spurning. Svona átaki fylgja skapsveiflur. En þetta var svo sannarlega þess virði.“
Mest lesið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Tónlist Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Lífið Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Fleiri fréttir „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Sjá meira