Innbrot á heimili valda fólki oft langvarandi vanlíðan Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 28. nóvember 2013 00:00 Þjófar sækjast einkum eftir verðmætum sem auðvelt er að koma í verð. Fréttablaðið/Valli „
Innbrot sitja oft lengi í fólki og getur það til að mynda lýst sér í því að viðkomandi líði ekki vel heima hjá sér. Fólk er hrætt og veltir því fyrir sér hvort innbrotsþjófurinn eða þjófarnir komi aftur en líkurnar á því eru í raun ekki meiri heldur en að brotist sé inn annars staðar. Fólk veltir því líka fyrir sér hvað þjófarnir hafi verið að gera inni á heimilinu og finnst það mengað og óhreint eftir innrásina. Margir fara í það að þrífa húsið hátt og lágt og þvo allan fatnað auk þess sem þeir henda ýmsum munum til daglegra nota,“ segir Sigrún A. Þorsteinsdóttir, sérfræðingur í forvörnum hjá tryggingafélaginu VÍS. Þótt innbrotum og þjófnuðum sem tilkynnt eru til VÍS hafi fækkað um helming frá árinu 2009 þegar tilkynningarnar voru 1.100 vekur það áhyggjur að þjófnuðum inni á heimilum sem ekki eru mannlaus hefur fjölgað, að sögn Sigrúnar.Sigrún A. ÞorsteinsdóttirHún getur þess að innbrotsþjófar sæti ekki hvað síst færis í úthverfum, sér í lagi á jarðhæð þar sem gluggar eru opnir. „Það er ekki bara myrkrið sem auðveldar þjófum að brjótast inn, heldur geta gróður og skjólveggir gert þeim sama gagn.“ Þjófar sæta sérstaklega færis á því að brjótast inn í bíla á aðventunni og hafa á brott með sér nýinnkeyptar jólagjafir. Sigrún bendir á að mikilvægt sé að gleyma ekki að loka gluggum og dyrum á bílnum og leggja honum þar sem lýsing er góð. Að sögn Sigrúnar hefur lögreglan upplýst um fimmtung innbrota sem framin hafa verið á árinu. „Þetta hlutfall sýnir glöggt hversu erfitt er að hafa uppi á þrjótunum og oft þýfinu líka. Í innbrotum er einkum sóst eftir verðmætum sem auðvelt er að koma í verð eins og tölvum, farsímum, sjónvörpum og skartgripum. Af og til sér fólk stolnar eigur sínar falboðnar á sölusíðum.“ Til þess að auka líkur á að endurheimta verðmæta muni eins og reiðhjól og rafmagnstæki er gott að skrá niður raðnúmer þeirra, að því er Sigrún bendir á. „Jafnframt hjálpar að eiga myndir af verðmætum, eins og málverkum og skartgripum. Mikilvægt er einnig að kynna sér hvort verðmæti til dæmis úra og skartgripa er meira en fjölskyldutryggingin bætir. Ef svo er þarf að tryggja slíka gripi sérstaklega.“ Ef brotist er í ólæst, mannlaus íbúðarhús, ólæsta bíla eða fyrirtæki getur skaðinn alfarið lent á tjónþola.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira