Innlent

Framhaldsskólar séu ekki stimplaðir

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Ungmennaráð Hafnarfjarðar segir suma framhaldsskóla vera "stimplaða.“
Ungmennaráð Hafnarfjarðar segir suma framhaldsskóla vera "stimplaða.“ Fréttablaðið/Stefán
Ungmennaráð Hafnarfjarðar segir að breyta þurfi viðhorfi í samfélaginu til ákveðinna framhaldsskóla í landinu. Á síðasta fundi ráðsins frá fram umræða um fordóma gagnvart ýmsum framhaldskólum.

„Ríkjandi viðhorf í samfélaginu, skólanum og meðal ungs fólks, hefur áhrif á ungmenni þegar kemur að val á framhaldsskóla. Neikvæð umfjöllun um vissa skóla og jafnvel ákveðin stimplun á sér stað ef ungmenni velur að stunda nám í ákveðnum framhaldsskólum. Þessu þarf að breyta,“ bókaði ungmennaráðið og boðaði tillögur í málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×