Mikil uppbygging í Vatnsmýri framundan 27. nóvember 2013 00:01 Dagur B. Eggertsson, Kristín Ingólfsdóttir, Ari Kristinn Jónsson og Páll Matthíasson eru meðal þeirra sem halda erindi á málþingi í dag um framtíðarsýn í Vatnsmýri. „
Það er nóg komið af bölmóði og svartsýni. Við viljum lyfta því sem er í spilunum og hjálpar okkur að lyfta framtíðinni í Reykjavík,“ segir Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, sem mun fjalla um framtíðarsýn aðalskipulags fyrir Vatnsmýrina á málþingi í dag sem ber yfirskriftina Tækifærin í Vatnsmýrinni. Fulltrúar frá hagsmunaaðilum á svæðinu munu einnig taka til máls á málþinginu en enginn sem tengist flugstarfsemi. „Framtíðarsýnin sem við tölum um í dag stendur ekki og fellur með hvar flugvöllurinn verður. Þetta er allt svæði sem hægt er að nýta óháð því og við eigum að nýta tækifærið strax til að efla þekkingarhagkerfið og draga alþjóðafyrirtæki á þetta svæði.“ Háskólinn í Reykjavík heldur málþingið í samstarfi við Reykjavíkurborg. „Það eru heilmörg tækifæri sem felast í því að þrjár öflugar mennta- og rannsóknastofnanir séu svo nálægt hver annarri. Það býr til tækifæri til að búa til þungavigtarmiðju þekkingar, uppbyggingar, menntunar og nýsköpunar í Vatnsmýrinni,“ segir Ari Kristinn Jónsson, rektor HR. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, vill leggja áherslu á byggingu nýs Landspítala. „Samstarf spítalans við háskólann er gríðarlega mikilvægt fyrir menntun heilbrigðisstétta sem og rannsóknir og sprotafyrirtæki sem hafa orðið til í tengslum við þessa samvinnu. Þessi uppbygging er liður í því að hér verði framsækin heilbrigðisþjónusta í framtíðinni.“ Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, segir Landspítala eiga að vera þekkingarfyrirtæki í fararbroddi á heimsmælikvarða. „Staðsetning í nálægð við háskólana er ein meginforsenda þess að framtíðaruppbygging verði farsæl,“ segir Páll. Á kortinu má sjá fjórtán framkvæmdir sem eru fyrirhugaðar á svæðinu. Margar hverjar hefjast á næsta ári, einhverjar eru ótímasettar og hvað varðar þrjár framkvæmdir ríkir óvissa þar til afgreiðslu á fjárlögum er lokið. Dagur B. Eggertsson og Ari Kristinn Jónsson ræddu málið í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Mest lesið Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bíll við bíl á Snæfellsvegi Innlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Innlent Fleiri fréttir Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Sjá meira