Væri ekki á þessum stað án Youtube 27. nóvember 2013 09:17 Emmsjé Gauti með afraksturinn af árs vinnu: Plötuna Þeyr. mynd/daníel „
Ég myndi aldrei vera á þessum stað ef ekki væri fyrir netið,“ segir rapparinn Emmsjé Gauti, sem heitir réttu nafni Gauti Þeyr Másson. Myndbönd og lög Gauta hafa notið gríðarlegra vinsælda á vefsíðunni Youtube, til að mynda hefur verið horft á fjögur myndbanda hans yfir hundrað þúsund sinnum hvert. Gauti hefur lagt mikinn metnað í myndbönd sín og hefur líka verið heppinn með samstarfsaðila, að eigin sögn. „Fyrst og fremst er ég heppinn að eiga góða að, ég hef unnið með ótrúlega skapandi fólki, fólki sem er í heimsklassa. Myndbandagerð skiptir mig miklu máli, þetta er listform sem bætir upplifun fólks á tónlistinni,“ bætir Gauti við. Í kvöld heldur Gauti útgáfutónleika en önnur breiðskífan hans sem ber titilinn Þeyr kom út fyrir stuttu. Fyrri plata hans, Bara ég, kom út árið 2011. „Agent Fresco spilar undir í flestum lögunum mínum, þannig að þetta verður svolítið rokkað sett,“ útskýrir Gauti og bætir við: „Úlfur Úlfur og Steinar munu sjá um upphitunina, ég er mjög hrifinn af þeim öllum.“ Hægt verður að kaupa diskinn við innganginn og fylgir aðgangsmiði á tónleikana með. Platan Þeyr hefur verið í vinnslu í um ár, að sögn Gauta. „Maður er alltaf að semja, alltaf að vinna í næstu plötu einhvern veginn. Ég sæki innblástur í daglegt líf, ég er fyrstu persónu rappari; ég rappa mikið um mitt eigið líf. Þannig að bara með því að vakna, ganga út og lifa er ég að vinna í tónlistinni.“ Auk þess að rappa hefur Gauti haslað sér völl sem fjölmiðlamaður, bæði með netsjónvarpsþætti og sem stjórnandi útvarpsþáttar. „Ég lít alveg jafn mikið á mig sem skemmtikraft og tónlistarmann.“ Þrátt fyrir að vera einungis 24 ára gamall á Gauti nokkuð langan rappferil að baki. „Ég kom fyrst opinberlega fram á Rímnaflæði þegar ég var í 8. bekk. Á þeim tímapunkti var ég efins um hvort ég ætlaði mér að leggja rappið fyrir mig. En þegar ég heyrði troðfullan salinn hvetja mig áfram fann ég að ég þyrfti að gera þetta,“ segir Gauti. Útgáfutónleikarnir fara fram á skemmtistaðnum Harlem og hefjast klukkan 21 í kvöld. Hér að neðan má sjá myndbandið við lagið Kinky.Kjartan Atli Kjartansson
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Björk og Yara nýtt par Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira