„Eins og að spila fótbolta með Maradona” Gunnar Leó Pálsson skrifar 26. nóvember 2013 10:30 Trommuleikararnir Steve Ferrone og Ringo Starr eru hér í góðu glensi. „
Þetta var eins og að spila fótbolta með Maradona,“ segir tónlistar- og dagskrárgerðarmaðurinn Magnús Einarsson sem lék með einum þekktasta trommuleikara í heimi á skemmtistaðnum Obladí á sunnudagskvöldið. Trommuleikarinn heitir Steve Ferrone og hefur unnið með mörgum af þekktustu og ástælustu tónlistarmönnum sögunnar, líkt og Eric Clapton, Michael Jackson, Tom Petty & the Heartbreakers og Duran Duran, ásamt mörgum fleirum. „Hann er staddur hér á landi með hljómsveitinni The Straits sem komu fram í Hörpu í gærkvöldi. Við þekkjumst frá því ég bjó í Los Angeles og við erum góðir félagar,“ segir trommuleikarinn Karl Pétur Smith. Þeir félagar fóru saman á skemmtistaðinn Obladí þar sem Ferrone tók í settið með hljómsveit hússins. Ferrone lék nokkur lög með hljómsveitinni. „Við spiluðum ýmislegt, blús, lög eftir Rolling Stones og Bítlana svo fátt eitt sé nefnt. Það var svakalega gaman að spila með honum, þvílíkur spilari,“ segir Magnús. Ferrone hefur komið fram á mörgum mjög þekktum tónleikum og ber þá helst að nefna órafmögnuðu tónleika Eric Claptons, þar sem lagið Tears in Heaven og Layla komu út í einstökum útgáfum. Að lokum segist Karl Pétur hafa dregið Ferrone á Hressó og hvatt hann til að bragða á íslenskri kjötsúpu. „Hann elskaði íslensku kjötsúpuna.“ Hér fyrir neðan má sjá tvö myndbönd þar sem Steve Ferrone fer á kostum, annars vegar á hinum frægu órafmögnuðu tónleikum Eric Claptons og hins vegar trommusóló á tónleikum með George Duke. Þá má lesa nánar um trommuleikarann hér og hér.Steve Ferrone, Magnús Einarsson, Björgvin Gíslason og Pétur Sigurðsson leika hér saman.
Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Fleiri fréttir Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Sjá meira