Gaf brjóst á milli skota Gunnar Leó Pálsson skrifar 26. nóvember 2013 10:00 Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir sjónvarpskona ásamt dóttur sinni í Toyota Aygo bifreið sinni. Mynd/Stefán „
Þetta er fyrsti sjónvarpsþátturinn sem ég tek þátt í, á eftir Íslandi í dag,“ segir sjónvarpskonan Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir en þáttur hennar, Á fullu gazi er frumsýndur í kvöld á Stöð 2. Finnur Thorlacius hefur umsjón með þættinum, ásamt Sigríði Elvu. Í þáttunum fengu Sigríður Elva og Finnur meðal annars að keyra flotta bíla líkt og Porsche Cayenne, Range Rover Evoque og Tesla rafmagnsbíl. „Það er erfitt að fara af svona bíl eins og Range Rover og yfir á litla Toyota Aygo bílinn minn.“Sigríður Elva var með dóttur sína á brjósti við tökur á þáttunum.Farið er yfir víðan völl í þáttunum og tekið á ýmsu sem tengist bílum og tækni. „Við förum í keppni um að búa til besta útilegubílinn, fengum bílhræ frá Vöku og fengum tvo sólarhringa til að gera það að sem bestum útilegubíl,“ útskýrir Sigríður Elva. Auk þess að búa til útilegubíl fer fram rallýkeppni, þar sem fræga fólkið keppir. „Það var mjög skemmtilegt en fólk blótar ómeðvitað svolítið mikið þegar það keyrir rallýbrautina,“ bætir Sigríður Elva við. Á meðal þátttakenda í rallýkeppninni eru Ásdís Rán Gunnarsdóttir fyrirsæta, Fjölnir Geir Bragason húðflúrari, Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður, Saga Garðarsdóttir leikkona og margir fleiri. „Svo heimsækjum við líka fólk sem á áhugaverða bíla, prufukeyrum þá og skoðum þá hátt og lágt.“ Lítið af óhöppum áttu sér stað við gerð þáttanna. „Þetta fór allt saman vel fram. Það var þó einhver smá sprenging sem heppnaðist svo vel að löggan kom á staðinn en engin slys urðu á fólki.“ Sigríður Elva er nýbökuð móðir en hún eignaðist dóttur í lok apríl með unnusta sínum Teit Þorkelssyni. „Ég ætlaði nú aldrei að eignast börn en það hefur svo sannarlega breyst, ég elska móðurhlutverkið, það er best í heimi,“ segir Sigríður Elva.Mæðgurnar láta fara vel um sig í torfærubílnum.Litla telpan fékk að vera á setti ansi mikið en Sigríður Elva var með hana á brjósti við tökur. „Ætli það hafi ekki verið mesta vesenið að hafa krakka á kantinum. Ég þurfti að gefa henni að drekka á milli skota og svo skiptust Kalli pródúser og Finnur á að passa hana. Hún á pottþétt eftir að verða tækjastelpa því hún brosti ávallt mikið þegar hún sá torfærubílana og öll tryllitækin,“ bætir Sigríður Elva við létt í lundu. Bogi Reynisson hljóðmaður, Karl Ágúst Guðmundsson leikstjóri og framleiðandi, og Kristinn Þeyr Magnússon myndatökumaður annast hér litlu telpuna á meðan mamman vinnur.Sjálf segist hún vera ágætlega mikil bílaáhugamanneskja en segist þó ekki vera bílanörd. „Ég hef gaman af öllu sem fer hratt og er vélknúið en finnst samt Formúla 1 vera rosalega leiðinlegt sjónvarpsefni.“ Þegar að tökum líkur á þáttunum hyggst Sigríður Elva fara í ferðlag með fjölskyldu sinni. „Mig langar að komast í sól því ég eyddi fæðingarorlofinu mínu í versta sumri Íslandssögunnar,“ segir Sigríður Elva. Á fullu gazi er á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 20.10 á þriðjudagskvöldum. Alls verða sýndir átta þættir.
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Björk og Yara nýtt par Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira