Innlent

Kanna þróun ESB og valkosti

Samúel Karl Ólason skrifar
Gylfi Arnbjörnsson er forseti ASÍ, en auk þeirra standa FA, SA og Viðskiptaráð Íslands að úttektinni.
Gylfi Arnbjörnsson er forseti ASÍ, en auk þeirra standa FA, SA og Viðskiptaráð Íslands að úttektinni. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Alþýðusamband Íslands, Félag atvinnurekenda, Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands hafa undirritað samning við Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands. Stofnunin á að sjá um umsjón úttektar á aðildarviðræðum við Evrópusambandið, þróun ESB og valkostum í efnahagsmálum.

„Hlutlæg og greinargóð“ úttekt er sögð lykilforsenda þess að meta hvaða kostir séu til þess fallnir að tryggja samkeppnishæfni atvinnulífsins til lengri tíma og skapa sem best lífskjör.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×