Ekki reyna að vera eins og allir aðrir Marín Manda skrifar 22. nóvember 2013 11:30 Sissa Ólafsdóttir.
Sissa Ólafsdóttir, ljósmyndari og skólastýra Ljósmyndaskólans, er í sínu draumastarfi. Sem barn var hún þó harðákveðin í að verða nunna en fór aðra leið og lærði þroskaþjálfann. Nokkrum árum síðar fann hún sterka þörf til að skapa og ákvað þá loks að slá til og læra ljósmyndun.Hver voru þín fyrstu skref í ljósmyndun? „Ég byrjaði að vinna fyrir Ingólfskaffi, módelsamtök og tímarit. Þá hélt ég að mig langaði til að verða tískuljósmyndari. Fljótlega byrjaði ég þó að mynda það sem mér fannst áhugaverðast á þeim tíma, þ.e.a.s taka barna-, fjölskyldu- og brúðarmyndir. Ég féll kylliflöt fyrir verkum ljósmyndarans Sally Mann þegar ég var í námi. Það voru einhverjir töfrar í myndunum hennar sem ég vildi ná fram í mínum myndum, á minn hátt.“Hvað er skemmtilegast við starfið? „Það er svo margbreytilegt, engir tveir dagar eru eins og það eru margar mismunandi leiðir til að taka góða ljósmynd. Eins hef ég í gegnum starfið kynnst mörgum af mínum bestu vinum og fengið að upplifa yndislegar stundir. Ljósmyndun er líka alltaf að breytast, sem er spennandi. Þegar ég byrjaði í ljósmyndun var allt myndað á filmu. Þegar stafrænar myndavélar komu til sögunnar opnaðist nýr heimur sem gerði manni skyndilega kleift að gera svo miklu meira við ljósmyndina.“Hvað gerir þú í frítíma þínum? „Ljósmyndun er ekki bara vinnan mín heldur líka mitt helsta áhugamál. Þegar ég er í fríi hugsa ég um ljósmyndun og leita að innblæstri. Ég ferðast, fer mikið á sýningar, horfi á bíómyndir og vinn að eigin verkefnum. Ég var einmitt að byrja á nýju verkefni þar sem ég vinn með nýtt, spennandi þema og þá fer allur minn frítími í að vinna að því.“Einhver góð ráð fyrir þá sem hafa áhuga á ljósmyndun? „Besta ráð mitt til þeirra sem eru að stíga sín fyrstu skref er að mynda og mynda og mynda. Einnig að læra á myndavélina þannig að þú vitir hvað hún getur gert fyrir þig. Skoða svo myndirnar gagnrýnum augum og sjá hvað þú getur gert betur. Ég trúi því einnig að þú verðir miklu betri ljósmyndari ef þú myndar það sem þú hefur áhuga á. Ekki reyna að vera eins og allir aðrir, það er til fullt af góðum ljósmyndurum, en fáir sem eru einstakir.“dagný.
Mest lesið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Í fyrsta sinn utan Úkraínu Menning Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Fleiri fréttir Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Sjá meira