Þetta er rosalegur heiður Marín Manda skrifar 24. nóvember 2013 14:30 Vigdís Finnbogadóttir afhenti Hjalta verðlaunin við hátíðlega athöfn í Gautaborg.
Grafíski hönnuðurinn Hjalti Karlsson tók í byrjun mánaðar á móti hinum virtu Torsten og Wanja Söderberg verðlaunum. Markmið verðlaunanna sem hafa verið veitt árlega síðan 1994, er að styðja stoðum við hönnun, handiðn og tísku á Norðurlöndunum. Fyrrverandi forseti Íslands, Vigdís Finnbogadóttir, afhendi verðlaunin við hátíðlega athöfn í Gautaborg. „Ég er búin að kaupa mér ný jakkaföt. Það var númer eitt tvö og þrjú,“ segir Hjalti Karlsson hlæjandi þegar hann er spurður út í nítján milljóna króna verðlaunaféð sem honum hlotnaðist. „Það er of snemmt að segja hvað þetta þýðir fyrir mig en þetta er rosalegur heiður og ég er nánast orðlaus,“ segir Hjalti sem var staddur á Íslandi í stuttri heimsókn þegar blaðamaður náði tali af honum.Gluggi sýningarinnar í Gautaborg.Hjalti Karlsson er grafískur hönnuður sem hefur búið í New York í Bandaríkjunum undanfarin tuttugu ár og rekur hönnunarfyrirtækið KarlssonWilker ásamt Jan Wilker meðeigenda sínum. Í kjölfar verðlaunaafhendingarinnar settu þeir félagar upp sýninguna, This is how I do it á Röhsska-safninu í Gautaborg. Af sýningunni á Röhsska-safninu.„Við erum búnir að vinna að þessari sýningu í rúmlega þrjá mánuði en þetta er risastór salur. Ég ákvað að skipta salnum í tvennt og búa til tímalínu af minni vinnu síðastliðin tuttugu ár öðrum megin en hinn helmingur sýningarinnar eru 7 stórar myndir sem hafa allar með Svíþjóð að gera.“ Verkefnin hafa verið margvísleg í gegnum árin og hefur hönnunarteymið KarlssonWilker meðal annars starfað fyrir Puma, MTV í USA og Time Magazine.Sýningin stendur til 2. febrúar.„Við hönnuðum eitt sinn tólf blaðsíður fyrir Time Magazine og ákváðum að tróða lítilli mynd af okkur á forsíðuna sem við héldum að þeir myndu gera athugasemd við, en þeir gerðu það ekki,“ útskýrir Hjalti. Aðspurður um tengslin til Íslands segist hann koma reglulega til landsins og hefur meðal annars verið að vinna með hljómsveitinni Gus Gus á Íslandi. Hjalti Karlsson - A Short Documentary 2013 from Torsten & Wanja Söderbergs pris on Vimeo.
Mest lesið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Tónlist Hvað veistu um… pitsur? Lífið Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Fleiri fréttir Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Sjá meira