Atvinnurekendur vilja færa frídaga en stéttarfélög hugsi Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 22. nóvember 2013 15:15 Verkalýðshreyfingin er ekki einhuga um að gera fyrsta mánudag í maí að almennum frídegi í stað 1. maí.Fréttablaðið/E. Ól.
Samiðn leggur til að frídagafrumvarp Bjartrar framtíðar verði samþykkt og verði að lögum eins og það er lagt fram. BSRB og Starfsgreinasambandið telja að 1. maí sé svo helgur dagur fyrir verkafólk að ekki komi til greina að hrófla við honum. Þetta kemur fram í umsögnum um frídagafrumvarp Bjartrar framtíðar sem liggur fyrir Alþingi. Rafiðnaðarsambandið er hins vegar á því að það megi taka 1. maí til endurskoðunar. „Það er engin að ræða um að fella 1. maí niður, það er sáralítið hlutfall launamanna sem tekur þátt í hátíðahöldunum og hægur vandi að koma þeim fyrir eftir sem áður í lok vinnudags,“ segja rafiðnaðarmenn og eru frekar jákvæðir gagnvart frumvarpinu í heild. BSRB gerir ekki athugasendur nema við tilfærslu 1. maí. Í umsögn Starfgreinasambandsins má greina vafa. Annars vegar eru kynnt sjónarmið þeirra sem vilja fara þá leið sem kynnt er í frumvarðinu og hins vegar þeirra sem engu vilja breyta. Landssamband eldri borgara telur að sú hefð sem skapast hefur um sumardaginn fyrsta og uppstigningardag, eigi sér sterkar rætur í íslenskri þjóðmenningu og ekki eigi að breyta því með einfaldri lagasetningu. Samtök atvinnulífsins vilja færa frí vegna uppstigningardags og sumardagsins fyrsta upp að næstu helgi en lýsa andstöðu við fjölgun frídaga sem lögð er til í frumvarpinu. Félag atvinnurekenda telur frumvarpið að hluta til ágætt en gerir athugasemdir við aukinn kostnað atvinnurekenda yrði það að lögum. Viðskiptaráð lýsir sömu skoðun og á svipuðum nótum eru athugasemdir Sambands íslenskra sveitarfélaga. „Frídagar eru hluti af vinnutímaákvæðum kjarasamninga og hafa breytingar á þeim áhrif á launakostnað sveitarfélaga,“ segir í umsögninni.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Sjá meira