Ræktar drottningar Ugla Egilsdóttir skrifar 21. nóvember 2013 11:00 Margrét Ísólfsdóttir, Þórður Freyr Sigurðsson og Þórdís Ósk Þórðardóttir stunda fjölskyldusportið. Mynd/Erla Berglind Sigurðardóttir
Margrét Ísólfsdóttir er býflugnabóndi á Hvolsvelli. Hún sinnir býflugunum yfir sumartímann í einn til tvo klukkutíma á viku. Býflugur hafa verið ræktaðar á Íslandi í nokkur ár með nokkrum árangri. Um það verður fjallað í fyrirlestri Ástríðar Pálsdóttur í Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði á Keldum í dag klukkan 12.20 til 13.00. Blaðamanni Fréttablaðsins lék forvitni á að vita hvernig þessi ræktun gengur fyrir sig og talaði við nýbakaða býflugnabóndann Margréti Ísólfsdóttur. Hún hóf býflugnarækt í sumar ásamt manni sínum eftir að þau fluttu á Hvolsvöll. Til þess að búa sig undir ræktunina sóttu þau yfirgripsmikið námskeið hjá Býflugnafélagi Íslands. „Á námskeiðinu lærir maður hvernig á að rækta býflugur og umgangast þær, halda búunum á lífi og rækta drottningar.“ Býflugnafélag Íslands sér um innflutning á býflugum frá Álandseyjum. Það er eina landið sem er laust við mítil sem er padda sem lifir á býflugum. Fyrir nokkrum árum varð hrun í býflugnastofninum á heimsvísu, sem hefur mikil áhrif á matvælaframleiðslu, því að býflugur sjá um að frjóvga akra. „Það eru uppi getgátur um að ástæðan hafi verið eiturefni sem var úðað á akrana. Þessi eiturefni eru ekki notuð við íslenska matvælaframleiðslu og þetta hrun hefur ekki komið til Íslands.“ Margrét bendir á að býflugnaræktun fari vel saman við aðra ræktun. „Það getur aukið uppskeru um þrjátíu til fjörutíu prósent.“ Margrét nýtir sér þetta og ræktar epli, perur, kirsuber, plómur, jarðarber og ýmiss konar salöt meðfram býflugunum. Umstangið í kringum býflugnaræktunina fer eftir því hversu mörg bú maður er með, að sögn Margrétar. „Við erum bara með eitt bú sem maður þarf að hugsa um í um það bil klukkutíma eða tvo á viku. Það þarf einungis að sinna þessu yfir sumartímann. Yfir veturinn leggjast býflugurnar í hálfgerðan dvala sem heitir klasi.“
Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Fleiri fréttir Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Sjá meira