Síauknar vinsældir Skipstjórnarskólans Þorgils Jónsson skrifar 20. nóvember 2013 10:33 Aðsókn að Skipstjórnarskólanum hefur aukist stórum síðustu ár. fréttablaðið/hari
Aðsókn að Skipstjórnarskóla Tækniskólans hefur verið með slíkum ágætum síðustu árin að vart er hægt að bæta við í bili. Skólastjóri segir stöðuga eftirspurn eftir skipstjórnarmenntuðu fólki. „Aðsóknin hefur verið nokkuð stöðug og góð síðustu ár og fjölgun, sérstaklega í dreifnáminu,“ segir Vilbergur Magni Óskarsson, skólastjóri Skipstjórnarskóla Tækniskólans, í samtali við Fréttablaðið. Aðspurður segir Vilbergur að bæði séu að koma inn nýir nemendur og gamlir að snúa aftur. „Nýir nemendur eru að sækja sér réttindi og flestir þeirra stefna að því að klára þau öll. Svo erum við líka með mikið af nemendum sem eru að koma aftur, jafnvel eftir langan tíma, til að bæta við sig réttindum.“ Vilbergur segir erfitt að gefa sér mikið um ákveðna tilhneigingu í náminu. „En það eru að koma inn menn með gamla fiskimannaprófið og sækja sér farmannaréttindi. Sérstaklega ef þeir eru að sigla á stærri fiskiskipum til útlanda og þurfa aukin réttindi þess vegna. Svo eru sumir að skipta um vettvang og fara yfir í farmennsku. Það er allt til í þessu.“ Með 242 nemendur, þar af 103 í dagskóla, segir hann erfitt að bæta við nemendum.„Ég hugsa að við eigum ekki að óbreyttu auðvelt með að taka á móti fleiri nemendum, bæði er það aðstaðan, sérstaklega fyrir verklegu kennsluna, og svo eru það kennarar, en það er ekki fleirum til að dreifa sem stendur.“ Aðspurður hvort mikil eftirspurn sé eftir útskriftarnemendum úr skólanum segir Vilbergur að svo sé. „Það hefur í sjálfu sér ekki verið gerð nein sérstök greining á þörfinni fyrir skipstjórnarfólk hér á Íslandi, nú eða í framtíðinni, en það er alltaf nokkur endurnýjunarþörf, auk þess sem margir sækja sér réttindi og fara svo utan til að vinna. Ég get ekki betur sér en að þeir sem við útskrifum fái allir vinnu.“Sigurður Friðfinnsson.Stúdentsprófið heillaðiSigurður Friðfinnsson er að hefja sinn þriðja vetur í Skipstjórnarskólanum. Hann sagði að það hefði blundaði í honum að fara í skólann áður en hann lét slag standa. „Ég var búinn að vera í landi í nokkur ár áður en ég ákvað að drífa mig í námið. Það var ýmislegt sem heillaði við þetta, meðal annars að þegar ég klára öll réttindin útskrifast ég líka með stúdentspróf.“ Aðspurður um hvað taki við að námi loknu segir Sigurður að hann stefni að því að fara á sjóinn. „En svo er líka möguleiki á því að fara í sjávarútvegsfræði í framhaldinu, mögulega í fjarnámi.“
Mest lesið Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Innlent Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Innlent Hegðun Trumps vonbrigði Innlent Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Innlent Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Innlent Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Innlent Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Innlent Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Fleiri fréttir Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Sjá meira