Langar að búa til Magga Mix-app næst Gunnar Leó Pálsson skrifar 19. nóvember 2013 10:15 Yfir hundrað þúsund manns hafa sótt eitt app Jóns Arnars Jónssonar forritara. mynd/Úr einkasafni „
Ég fékk mikinn áhuga á að búa til öpp í fyrra,“ segir Jón Arnar Jónsson forritari sem hefur búið til nokkur öpp undanfarið. Fyrir skömmu bjó hann til app sem kallast Best Minecraft Soundboard en það hefur verið sótt yfir hundrað þúsund sinnum. „Ég bjó til þetta app með börnunum mínum, þau hafa gaman af þessum leik og finnst tónlistin skemmtileg,“ útskýrir Jón Arnar. Fyrsta appið sem hann bjó til hét Indriði og var það vinsælt hér á landi og hefur verið sótt yfir ellefu þúsund sinnum. „Indriði er náttúrulega frábær karakter í Fóstbræðrum sem ég held mikið upp á. Ég tók eitt matarhlé í að smíða það app,“ útskýrir Jón Arnar sem fékk mjög góð viðbrögð við appinu. Aðspurður um hversu mikil vinna sé að búa til app segir hann það vera misjafnt en það taki kannski tvær til þrjár kvöldstundir fyrir mann sem kann eitthvað í forritun. „Það er líka mikið af efni á Youtube sem getur hjálpað til.“ Öppin sem hann hefur gert eru fáanleg á Google Play Store. „Þetta er fyrir alþjóðamarkað en rúmlega sextíu prósent af þeim sem hafa sótt Minecraft-appið eru í Bandaríkjunum.“ Þeir sem búa til vinsæl öpp geta fengið ágætis tekjur þannig að það er til mikils að vinna í þessum geira. Jón Arnar langar að búa til fleiri öpp. „Mig langar að búa til Magga Mix-app, þar sem hægt er að finna „pick up“-línurnar hans, uppskriftir og annað slíkt. Mig langar að gera það fyrir næstu verslunarmannahelgi, því það er gott að hafa Mixarann í vasanum þá,“ bætir Jón Arnar við.
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira