Brúður túlka efnahagshrunið Gunnar Leó Pálsson skrifar 19. nóvember 2013 10:00 Andrea Ösp Karlsdóttir leikkona og Þórður Gunnar Þorvaldsson tóna- og hljóðsmiður nýkomin úr ævintýraferð. fréttablaðið/vilhelm „
Þetta var mjög gaman og mikið ævintýri að taka þátt í þessu,“ segir Andrea Ösp Karlsdóttir leikkona sem tók þátt í brúðusýningunni SAGA, sem lauk nýverið með Noregstúr. SAGA er brúðusýning unnin af leikhópnum Wakka Wakka Productions sem stofnaður var af Gwendolyn Warnock og Gabrielle Brechner frá Bandaríkjunum og Kirjan Waage frá Noregi en leikhópurinn var stofnaður árið 2001. „SAGA er nútíma víkingasaga og fjallar um fjölskyldu sem lendir illa í því í efnahagshruninu á Íslandi 2008. Maður einn selur kvótann sinn og flytur út á land með fjölskyldunni til að opna gistihús og veitingastað, hann kaupir sér nýjan jeppa og tekur nokkur lán til að opna þetta frábæra gistiheimili. Í hruninu missa þau allt út úr höndunum og úr verður mikið ævintýri,“ útskýrir Andrea. Ásamt henni tekur annar Íslendingur þátt í sýningunni, hljóð- og tónasmiðurinn Þórður Gunnar Þorvaldsson, en hann sér um alla hljóð- og tónlistarvinnu í sýningunni. „Ég fór í prufur í New York, svo fór ég líka í prufu þegar þau komu til Íslands. Prufan var í júní í fyrra og byrjaði ég strax að vinna með þeim í heimildarvinna en við unnum sýninguna í New York og í leikhúsi í Noregi,“ segir Andrea. Sýningin, sem fer fram á ensku, er mjög sjónræn og brúðunum er gefið mikið líf sem áhorfendur tengjast. Um er að ræða yfir þrjátíu brúður af öllum stærðum, en minnsta brúðan er um tíu sentímetrar á hæð og sú stærsta hátt í þrír metrar á hæð. „Við frumsýndum í Noregi í desember í fyrra en þaðan fórum við til New York og sýndum sex sinnum á viku í sex vikur „off-broadway“ og fengum frábæra gagnrýni, meðal annars frá The New York Times, The Village Voice og fleiri virtum miðlum. Í lok ferlisins unnum við síðan sérstök Drama Desk-verðlaun fyrir sýninguna,“ bætir Andrea Ösp við. SAGA verður sýnt á Íslandi í júní í Þjóðleikhúsinu í tilefni af Listahátíð í Reykjavík.Mótmælin frægu koma fyrir í sýningunni.
Mest lesið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hvað veistu um… pitsur? Lífið Fleiri fréttir Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Sjá meira