Gefa bókasafnsbækur sem á að farga Garðar Örn Úlfarsson skrifar 19. nóvember 2013 08:00 Gauti Jóhannesson, sveitarstjóri á Djúpavogi, er ánægður með innbundinn árgang af tímaritinu Skírni frá nítjándu öld sem hann fann á bóka- og blaðamarkaðnum í löndunarhúsinu. Mynd/Ólafur Björnsson „
Það ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi,“ segir Gauti Jóhannesson, sveitarstjóri á Djúpavogi, þar sem fólki gefst nú kostur á að eignast bækur og tímarit frá bókasafni bæjarins. „Við eigum tvö eintök af sumu og annað er úr sér gengið og hefur ekki hreyfst lengi. Við tökum þann kostinn vegna plássleysis að bjóða fólki að renna í gegn um safnið og það má eiga það sem því líst á,“ segir Gauti. Bókunum og blöðunum var komið fyrir í löndunarhúsinu 7. nóvember. Markaðinum lýkur á föstudaginn. Gauti segir að framtakinu hafa verið tekið mjög vel. „Þarna er margt mjög forvitnlegt og það margir komið og haft gaman af að renna í gegn um úrvalið. Þarna eru til dæmis gamlir árgangar af hinum og þessum tímaritum,“ segir Gauti sem sjálfur náði sér einmitt í innbundinn árgang af tímaritinu Skírni. „Ég hafði mjög gaman af því. Ég held að hann sé frá því rétt fyrir nítján hundruð.“ Aðspurður kveðst Gauti ekki óttast að bærinn sé að gefa frá sér einhverjar gersemar. „Nei, starfsfólk bókasafnsins er náttúrlega búið að fara í gegn um þetta. Það sem menn litu á sem gersemar hér í eina tíð er bara orðið fyrir núna,“ segir sveitarstjórinn sem kveður bókasafnið hreinlega hafa verið búið að sprengja utan af sér húsnæðið.Í löndunarhúsinu geta Djúpavogsbúar gengið að fjölbreyttum bóka- og tímaritakosti sem ekki er lengur pláss fyrir á bókasafninu.Mynd/djupivogur.isGauti segist ekki vita hversu mikið af bókum og blöðum hafi verið í boði í löndunarhúsinu. „En þetta fyllti nokkur fiskikör,“ segir hann til að gefa hugmynd um magnið. Það sem ekki er gengið út á föstudaginn á ekki afturkvæmt í bókasafnið. „Það er synd að þurfa að farga þessu. En ef fólk vill ekki þiggja þetta að gjöf þá er eftirspurnin bara ekki meiri en raun ber vitni,“ segir Gauti sem á von á afganginum verði pakkað og hann sendur í endurvinnslu. „En ef einhver lesandi vill eiga safnið þá er mönnum það frjálst og sársaukalaust fyrir okkur að senda þetta eitthvert - ef menn borga undir það.“
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sjá meira