Nauðsynlegt að sameina háskóla Höskuldur Kári Schram skrifar 16. nóvember 2013 10:30 "Ég hef alltaf litið svo á og hef lýst yfir þeirri skoðun að hlutverk RÚV eigi að snúa að því að tryggja að boðið sé upp á efni sem einkastöðvarnar eiga erfitt með að gera,“ segir Illugi Gunnarsson. Fréttablaðið/Valli
Tillögur hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar voru kynntar í vikunni. Hópurinn leggur meðal annars til að háskólum verði fækkað með sameiningu eða samstarf milli háskóla verði aukið til að nýta megi fjármuni betur. Illugi segir að þetta séu skynsamlegar tillögu og segir nauðsynlegt að sameina háskóla með einhverjum hætti. „Ég held að það sé alveg augljóst þegar við horfum á háskólasviðið okkar að það er heldur mikið í lagt fyrir rétt rúmlega 300 þúsund manna þjóð að vera með sjö háskóla. Ég hef ekki viljað segja á þessari stundu hvaða háskólar það eru sem ég tel rétt að sameinist eða breyti rekstrarformi sínu en það er augljóst að þessi staða er uppi,“ segir Illugi. Vinna við þetta er þegar hafin innan ráðuneytisins en ekki liggur fyrir hvenær henni lýkur. „Ég sé ekki fram á að fjárframlög til háskólastarfs muni aukast mikið á næstunni. Þá verðum við að horfa á hina hliðina, þ.e. hvernig getum við nýtt fjármunina betur til þess að auka gæðin. Þetta á bæði við um kennsluna en ekki síður rannsóknir. Ef við getum búið til meiri gæði fyrir sömu fjármuni þá eigum við að gera það. Hagræðingarhópurinn er ekki að leggja til að við förum að draga fjármuni út úr háskólakerfinu. Ég held að allir hljóti að vera sammála því að við þurfum að auka. En þá er það spurningin hvað við getum aukið. Ef við getum náð fram betri gæðum með samruna, sameiningu eða aukinni samvinnu þá þurfum við að gera það. Svo þurfum við markvisst á næstu árum og sennilega áratugum að auka fjárframlög til háskólastigsins. Allir hljóta að sjá að við getum ekki haft það þannig að við séum eftirbátar þeirra þjóða sem við viljum bera okkur saman við.“Aukning til rannsóknarsjóða Ákvörðun Illuga um að falla að hluta frá fyrirhugaðri hækkun á fjárframlögum til rannsóknarsjóða hefur mætt mikilli gagnrýni. Illugi segir að hækkunin hafi byggst á fjárfestingaáætlun síðustu ríkisstjórnar og að sú áætlun hafi ekki verið að fullu fjármögnuð. „Hún var grundvölluð á því að menn voru að gefa sér ákveðnar forsendur varðandi stöðuna í ríkisfjármálum. Bæði hvað varðar tekjur og útgjöld. Þær hafa ekki gengið eftir. Í fyrstu var talið að ríkissjóður ætti að vera í jafnvægi en í stað þess stefnir í 30 milljarða króna halla. Þar þarf að grípa til einhverra aðgerða. Við erum þess vegna að skera niður. Hins vegar er einungis hluti af þessari hækkun til rannsóknarsjóða tekinn til baka. Stór hluti hennar stendur eftir. Þannig að ef menn bera þetta saman við árin 2012, 2011 og 2010 þá er um verulega aukningu að ræða.“Úrelt framhaldsskólakerfi Ársæll Guðmundsson, formaður Skólameistarafélags Íslands, sagði í samtali við Fréttablaðið á fimmtudag að framhaldsskólakerfið hér á landi væri úrelt. Kerfið sé ósveigjanlegt og að hluti vandans sé kjarasamningar kennara. Illugi tekur undir orð Ársæls og segir nauðsynlegt að endurskoða kerfið. „Við þurfum auðvitað að skoða kerfið og það er eitthvað sem aðrar þjóðir hafa líka verið að gera. Menn eru að reyna að auka sveigjanleika. Hluti af því eru kjarasamningar og hvernig þeir eru uppbyggðir. Það hefur án vafa áhrif þar á en ég er ekki að segja að það ráði öllu. Ég held að allir sem hafa skoðað þessi mál viti að kjarasamningar og uppbygging þeirra er ekki beint til þess fallin að auðvelda eða liðka fyrir. En þetta á allt sínar sögulegu ástæður og að sjálfsögðu verða menn að horfast í augu við það en það er líka nauðsynlegt að horfa til framtíðar og spyrja sig hvernig við viljum byggja upp framhaldsskólakerfið.“Nauðsynlegt að stytta nám Illugi hefur verið talsmaður þess að stytta nám til stúdentsprófs og telur enn fremur rétt að sameina framhaldsskóla. „Það kann að vera nauðsynlegt að sameina skóla undir eina stjórn til að tryggja að nemendur hafi aðgang að nægilegu námsframboði. Það er erfitt fyrir minni skólastofnanir að bjóða upp á jafn fjölbreytt nám og stóru skólarnir geta gert. Spurningin er hvort að það sé hægt með samvinnu eða sameiningu. Aðalatriðið er að tryggja aukin gæði í framhaldsskólastarfinu og aukna valmöguleika fyrir nemendur. Vitanlega þarf líka að huga að hagræðingunni. Það er ekki hægt að horfa fram hjá því,“ segir Illugi. Hann segist ætla að beita sér sérstaklega fyrir því að stytta nám til stúdentsprófs. „Ég held að það sé skynsamlegast að nálgast þetta út frá sjónarhorni nemendanna. Nemendurnir eiga sinn tíma, hver og einn einstaklingur á sinn tíma. Ríkið á ekki tímann. Skylda hins opinbera er að bjóða upp á kerfi sem gerir nemendum kleift að nýta sinn tíma sem best. Ísland er eina landið í OECD þar sem það tekur 14 ár að undirbúa sig undir háskólanám. Öll önnur lönd eru með 12 til 13 ár. Með öðrum orðum, hin löndin bjóða nemendum upp á kerfi þar sem þeir geta nýtt tíma sinn betur. Er það eitthvað sérstakt á Íslandi sem er ólíkt öllum öðrum löndum og gerir það að verkum að við þurfum 14 ár en allir aðrir 12 eða 13? Á meðan menn koma ekki með útskýringu á því af hverju það þurfi að vera 14 ár þá tel ég einsýnt að stytta námið,“ segir Illugi.Hlynntur sameiningu stofnana Í tillögum hagræðingarhópsins er lagt til að yfirstjórnir opinberra safna og menningarstofnana verði sameinaðar til að auka hagræðingu. Þannig er lagt til að yfirstjórnir Þjóðleikhússins, Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Íslenska dansflokksins og Íslensku óperunnar verði sameinaðar. Einnig yfirstjórnir Náttúruminjasafns Íslands, Þjóðminjasafns Íslands, Listasafns Einars Jónssonar og Listasafns Íslands. Illugi segir að óperan sé ekki ríkisstofnun og því hafi hann ekki vald yfir henni. Að öðru leyti segist hann vera opinn fyrir þessum tillögum. „Eitt af því sem við erum komin af stað með er að sameina Námsgagnastofnun og Námsmatsstofnun. Tilgangurinn er ekki bara að spara peninga heldur líka auka gæðin.“Uppsagnir ekki útilokaðar Illugi útilokar ekki að fækkun yfirstjórna og sameining skóla muni kalla á uppsagnir. „Nú er það þannig með opinbera starfsmenn rétt eins og alla aðra starfsmenn að menn geta ekki gengið að því vísu að halda sínu starfi. Það geta komið aðgerðir sem gera það að verkum að starfsmönnum fækkar. Það á við um hinn almenna vinnumarkað og einnig ríkisstarfsmenn. Tilgangurinn er hins vegar ekki að fækka opinberum starfsmönnum. Tilgangurinn er að nýta sem best skattpeningana,“ segir Illugi.Vill endurskilgreina hlutverk RÚV Innan menntamálaráðuneytisins er nú hafin vinna í tengslum við endurnýjun á þjónustusamningi ríkisins við RÚV. Illugi vill endurskoða hlutverk RÚV. „Ég hef alltaf litið svo á og hef lýst yfir þeirri skoðun að hlutverk RÚV eigi að snúa að því að tryggja að boðið sé upp á efni sem einkastöðvarnar eiga erfitt með að gera. Ekki endilega að sé til markaður fyrir slíkt efni. Þetta hefur einkum að gera með sögu þjóðarinnar, menningu hennar og listir, og jafnvel stjórnmálaumræðu. Einkaaðilar eru líka að sinna þessu en við gerum þá kröfu að RÚV sinni þar auknu hlutverki.“ Illugi segir að tæknibreytingar, t.d. varðandi miðlun efnis, muni umbylta fjölmiðlamarkaðinum á næstu árum. Þetta þurfi einnig að hafa í huga þegar endurskoða á hlutverk RÚV. „Ef menn ætla að halda áfram að hafa ríkisútvarp þarf það að hafa sérstaka skírskotun og sérstakan tilgang. Ég held að hann snúi að íslenskri menningu og þess vegna er ég þeirrar skoðunar að það eigi að vera ríkisútvarp. En ég er ekki talsmaður þess að það sé til ríkisútvarp sem sé alveg eins og aðrir fjölmiðlar sem starfa á einkamarkaði,“ segir Illugi.Leysir engan vanda að loka Þjóðleikhúsinu Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum og flokksbróðir Illuga, kallaði nýlega eftir breyttri forgangsröðun í ríkisfjármálum til að tryggja grunnþjónustu. Gagnrýndi hann sérstaklega að peningum væri varið í rekstur Þjóðleikhússins og Sinfóníuhljómsveitar Íslands á sama tíma og verið væri að skera niður í heilbrigðismálum. Illugi er ósammála Elliða hvað þetta varðar. „Ég skil stöðu hans sem bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. Hann er að auðvitað að reyna að verja að það sé ákveðin þjónusta til staðar í Vestmannaeyjum. Okkur vantar meira fé inn í heilbrigðiskerfið en lausnin á því er ekki að loka Þjóðleikhúsinu. Okkur vantar líka meira fjármagn inn í menntakerfið og ég er alveg klár á því að öryrkjar og aldraðir telja að það vanti meira fjármagn inn í þeirra málaflokk. Að mínu mati er umræðan á villigötum. Ætla menn að loka Þjóðleikhúsinu af því að það vantar fjármagn hér og þar? Hvað ætla menn að gera þegar búið er að loka Þjóðleikhúsinu og áfram vantar? Siðað samfélag þarf á svona starfsemi að halda og þetta bætir samfélagið,“ segir Illugi.
Mest lesið Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent Rak í rogastans þegar hann las viðtalið við Bubba Innlent Samgönguráðherrann lést daginn sem Pútín rak hann Erlent Fimm grunuð um að ráðast á mann sem kom öðrum til bjargar Innlent Tugir með magapínu eftir þríþraut við Laugarvatn Innlent Ekki efni til að ákæra þá sem fötluð kona var látin hafa samræði við Innlent Aldrei séð annan eins hraðakstur eftir þrjátíu ár í lögreglunni Innlent Grunaðir um að stinga mann í rassinn að tilefnislausu Innlent „Kemur ekki til greina að fresta þessu máli“ Innlent Sjö ára dómur fyrir að stinga tvo: Hittu árásarmanninn í fyrsta skipti þessa nýársnótt Innlent Fleiri fréttir Skiltið hluti af stærra vandamáli sem dragi úr lífsgæðum Spyr hvort berja megi blaðamenn í ljósi sýknudómsins Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Fjársvelt geðheilbrigðisúrræði og boltaleikjabann „Kemur ekki til greina að fresta þessu máli“ Fimm grunuð um að ráðast á mann sem kom öðrum til bjargar Þrír milljarðar til viðbótar í viðhald vega Sjö ára dómur fyrir að stinga tvo: Hittu árásarmanninn í fyrsta skipti þessa nýársnótt Vill vindorkuver í Garpsdal og breytir tillögu stjórnar Tugir með magapínu eftir þríþraut við Laugarvatn „Við erum með háskólakerfi sem er fjármagnað undir OECD meðaltali“ Rembihnútur á þinginu en örþrifaráð ekki til umræðu Ákvörðun saksóknara sendi undarleg skilaboð Þinglok ekki í augnsýn og háskólarnir undirfjármagnaðir Grunaðir um að stinga mann í rassinn að tilefnislausu Ný kort sýna hvernig almyrkvinn verður á Íslandi Bandarískur kjarnorkukafbátur í heimsókn Formenn þingflokka halda spilunum þétt að sér Skjálfti upp á 3,4 í morgun á Suðurlandi Ekki efni til að ákæra þá sem fötluð kona var látin hafa samræði við Hiti nær 22 stigum fyrir austan Fjarlægðu „óvelkominn aðila“ af öldrunarheimili Rak í rogastans þegar hann las viðtalið við Bubba Árbæingar áhyggjufullir vegna umdeildra framkvæmda Aldrei séð annan eins hraðakstur eftir þrjátíu ár í lögreglunni Metfjöldi á biðlista og mögulega þarf að vísa frá Einstök litasamsetning á Prinsi Greifa Bíll í ljósum logum á Skaganum Vatnslögn í sundur í Smáralind Aldrei fleiri börn á biðlista og útrás í Kína Sjá meira
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent