Bílastæðin í miðborginni umsetin þrátt fyrir hækkun Þorgils Jónsson skrifar 16. nóvember 2013 11:25 Þrátt fyrir að gjald í skammtímastæði í miðborginni hafi hækkað eru stæðin enn umsetin. Fréttablaðið/Anton
Bílastæðanýting við Laugaveg hefur ekki minnkað að ráði þrátt fyrir hækkun bílastæðagjalda í ágúst í fyrra. Þetta kemur fram í tölum Bílastæðasjóðs. Með nýju gjaldskránni hækkaði gjald í skammtímastæði á gjaldsvæði 1 úr 150 krónum á klukkustund upp í 225 og gjaldskyldutími á laugardegi lengdist um þrjá tíma. Meðal raka þeirra sem voru andsnúnir hækkuninni var að með þessu væri verið að hrekja fólk á einkabílum úr miðborginni. Kannanir Bílastæðasjóðs leiða hins vegar í ljós að nýting stæðanna fyrri hluta dags jókst úr 92 prósentum upp í 98 prósent í mars miðað við sama mánuð í fyrra, í apríl fór nýtingin eilítið niður á við, en stóð engu að síður í 92 prósentum, og í júlí fór nýtingin niður í 83 prósent, en þá var hluti Laugavegar göngugata. Sé litið til mælinga í eftirmiðdaginn hækkaði nýtingin bæði í apríl og júlí. „Við hækkuðum verðið til að auka flæði, en það hefur ekki breyst á gjaldsvæði 1, þannig að þetta dugði ekki til,“ segir Karl Sigurðsson, formaður umhverfis- og samgönguráðs. Aðspurður hvort frekari hækkun væru í kortunum sagði Karl að verið væri að skoða framhaldið. „Við ræðum á hverjum fundi hvað við getum gert til að auka flæðið.“
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sjá meira