Brjáluð móðir drepur Helga 15. nóvember 2013 00:01 Tekur sig vel út Hér má sjá Helga Sæmund í leikaragírnum í kvikmyndinni Walkers. „
Þetta var rosalega skemmtileg reynsla,“ segir rapptónlistarmaðurinn Helgi Sæmundur Guðmundsson úr hljómsveitinni Úlfur Úlfur leikur hlutverk í leiknu heimildarmyndinni Walkers, sem fjallar um afturgöngur á Íslandi. Helgi leikur vinnumann sem á í ástarsambandi við stúlku þvert á vilja móður hennar. „Móðirin er svo ósátt við þetta ástarsamband að á endanum drepur hún mig,“ segir Helgi. Myndin er samstarfsverkefni ungra kvikmyndagerðarmanna sem safna nú á vef Karolina Fund, í von um að ná að fjármagna lokastig myndarinnar. Að sjálfsögðu vonast Helgi til þess að myndin verði kláruð. En aðkomu Helga að kvikmyndinni bar skjótt að höndum. „Ég fékk óvænt símtal frá einum aðstandanda myndarinnar. Ég hef ekki leikið áður og það er ekki í mínum plönum að hella mér út í leiklistina. En ef einhverjum leikstjóra líst vel á mig í myndinni þá er ég mjög til í að leika meira.“ Hljómsveitin Úlfur Úlfur vinnur nú að útgáfu nýrrar plötu. „Við stefnum á að gefa hana út í febrúar. Við höfum verið að skoða útgáfumál. Nokkrir útgefendur hafa rætt við okkur, en það gæti endað með því að við gefum plötuna bara út sjálfir.“ Helgi er nú fluttur úr höfuðborginni og býr á Hellu, ásamt kærustu sinni sem er dýralæknir í Rangársveit. „Það gerir samstarf okkar Arnars (Freys Frostasonar) aðeins erfiðara. Ég er með hljóðver hérna heima og bíð eftir því að hann komi í kjúkling og rapp,“ segir Helgi en lítið er eftir af plötunni að hans sögn. „Þetta er mestmegnis einhver frágangsvinna sem er eftir. Hún er nánast fullkláruð.“
Mest lesið Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Lífið Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Lífið Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið Lífið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Lífið Barnastjarnan Kaylee Hottle látin Lífið Stefnir með sjö fjölskyldum aftur á Unglingalandsmótið Lífið samstarf Myndaveisla: Götubitinn í Hljómskálagarðinum Lífið samstarf Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið Lífið „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Lífið Feimnin við að rukka: Ekki treysta á „ég borga þetta og þú næsta“ Áskorun Fleiri fréttir Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Sjá meira