Moses Hightower í nýju ljósi Gunnar Leó Pálsson skrifar 7. nóvember 2013 08:00 Ný plata með endurhljóðblönduðu efni Moses Hightower komið út. fréttablaðið/arnþór „
Okkur langaði alltaf að gera þetta eftir að fyrsta platan okkar kom út, en nú létum við verða af því,“ segir Magnús Trygvason Eliassen, trommuleikari hljómsveitarinnar Moses Hightower, sem gefur út plötuna Mixtúrur úr Mósebók í dag. Platan inniheldur lög hljómsveitarinnar þar sem ýmsir listamenn hafa klætt lög sveitarinnar í nýjan og breyttan búning. „Það eru listamenn á borð Borko, Sin Fang, Múm, Forgotten Lores og Retro Stefson, ásamt fleirum sem hafa gert nýjar útgáfur af lögunum okkar,“ segir Magnús.Nýju útgáfurnar eru misjafnar eins og þær eru margar, sumar eru rólegri og aðrar eru hressari en upprunalega lagið. „Okkur finnst þessi plata frábær og sum lögin í rauninni betri en upprunalega útgáfan,“ bætir Magnús við. Platan er fjármögnuð með hjálp vefsíðunnar Karolina Fund, sem er síða þar sem hægt er að safna fé fyrir alls kyns uppátækjum. „Okkur þótti þetta góð hugmynd og það gekk mjög vel að safna fjármunum í gegnum síðuna,“ útskýrir Magnús. Í tilefni útgáfunnar verður slegið upp gleðskap í Lucky Records við Rauðarárstíg 10, klukkan 20 í kvöld. „Það er alveg líklegt að við grípum í hljóðfærin eftir að við höfum hlustað á plötuna,“ bætir Magnús við að lokum en hér fyrir neðan má heyra lögin Góður í og 10 dropar í útgáfum eftir Kippa Kanínus og Halla Civelek.
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fleiri fréttir Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Sjá meira