Tónleikar til heiðurs Joni Mitchell Gunnar Leó Pálsson skrifar 7. nóvember 2013 10:45 Tónlistarkonurnar Kristjana Stefánsdóttir og Ragnheiður Gröndal koma fram á tónleikunum. mynd/einkasafn
Margir þekktustu söngvarar þjóðarinnar koma fram. „Þetta er upprunalega hugmynd frá Röggu Gröndal, hún hefur gengið með hana síðan í haust,“ segir Kristjana Stefánsdóttir tónlistarkona sem kemur fram á heiðurstónleikum í kvöld. Afmælisheiðurstónleikarnir eru til heiðurs Robertu Joan Anderson, sem er betur þekkt sem Joni Mitchell og af því tilefni ætla nokkrir af fremstu flytjendum og listamönnum þjóðarinnar að koma saman og halda upp á afmælið hennar. „Við förum yfir feril hennar sem er ansi langur og tökum lög frá hinum ýmsu tímabilum, alveg frá fyrstu plötunum til nýjustu platna hennar,“ bætir Kristjana við. Á tónleikunum koma eingöngu fram söngvarar sem eru miklir aðdáendur Joni Mitchell. „Við erum öll miklir aðdáendur og höfum hlustað mikið á hana.“ Fram koma þau Andrea Gylfadóttir, Björn Jörundur Friðbjörnsson, Egill Ólafsson, Kristjana Stefánsdóttir, Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir Lay Low, Margrét Eir Hönnudóttir, Ragnheiður Gröndal, Sigríður Thorlacius og Valdimar Guðmundsson. Hljómsveitarstjóri er Guðmundur Pétursson, Guðmundur Óskar spilar á bassa og Ragnheiður Gröndal leikur á píanó. „Við höfum æft undanfarna daga, þetta gengur rosalega vel og ég hlakka mikið til.“ Tónleikarnir fara fram í Iðnó og eru miðar seldir við innganginn. Húsið verður opnað kl. 19.30 en tónleikarnir hefjast kl. 21.00. „Við lofum notalegri og fallegri kvöldstund,“ segir Kristjana að lokum.
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Fullkominn kókos og chiagrautur að hætti Elísabetar Mettu Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira