Vantar hornin Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar 31. október 2013 11:00 Bryndís Hera Gísladóttir var kosin í 5. sæti í Ungfrú Ísland. Um förðun á þessari mynd sá Andrea Sigurðsdóttir með Nyx-förðunarvörum. mynd/stefán „
Falleg föt hafa alltaf verið áhugamál hjá mér og ég á rosalega mikið af þeim,“ segir Bryndís Hera sem að undanförnu hefur þrívegis farið utan með kærastanum Ásgeiri Kolbeinssyni og gert reyfarakaup á flottum tískufatnaði. „Við Ásgeir deilum ferðabakteríunni og förum utan sem oftast. Fyrst fórum við til New York, síðan í sólarlandaferð til Spánar og síðast til Lundúna. Í desember ætlum við aftur til New York þar sem ég ætla að kaupa mér marga jólakjóla og smávegis af jólagjöfum,“ segir Bryndís og hlakkar til. „Ég hef engan ákveðinn stíl heldur sveiflast dag frá degi á milli á stíla. Ég var til dæmis lítið fyrir kjóla áður en ég eignaðist svona mikið af þeim og líður jafn vel í gallabuxum eða íþróttafötum,“ segir Bryndís sem er litaglöð. „Ég valdi mér gula vetrarúlpu því glaðlegir litir klæða mig vel. Þessi úlpa er mér allt því hún er hlý eins og sæng og dýrmæt því hún var rándýr og tók mig langan tíma að safna fyrir henni.“ Í Fegurðarsamkeppni Íslands var Bryndís kosin fimmta fegurst og fyrirsæta Júnik og Púkans.com. Af því er viðurnefnið púkastelpan komið. „Það halda margir að ég sé púki í mér en ég er hvorki púkaleg né púki og það vantar á mig hornin,“ segir hún og hlær. Bryndís er fædd og uppalin í Þorlákshöfn og nýlega flutt til borgarinnar. „Ég er meiri sveitastelpa en borgarbarn og líður best í sveitinni. Mér fannst gott að alast þar upp og tel betra fyrir börn að alast upp við frelsið sem fylgir því að búa í litlum bæ eða sveit.“ Bryndís er nú á lokaári til stúdentsprófs við Fjölbrautaskóla Suðurlands og vinnur á Austur með náminu. „Mig langar í skapandi nám eftir stúdentspróf og er alltaf uppfull af hugmyndum um hönnun á öllu mögulegu. Ég hef alltaf verið frjó í hugsun og skapaði mér strax eigin fatastíl sem barn, eins og þegar ég strengdi græna skóreim utan um hausinn og stóð á því fastar en fótunum að flott væri að fara þannig út þótt frænka mín harðneitaði að láta sjá sig með mér.“
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Adda og Alfreð eignuðust dreng Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Sjá meira