Hundstönnin í undirgöngum Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 24. október 2013 10:00 Harrý Jóhannsson er listamaðurinn á bak við veggskreytinguna á Laugavegi 34. Mynd/Gva „
Munstrið heitir Houndstooth og er rótgróið í tískuheiminum. Ég rakst á það á hatti í búðinni og sá að það yrði gaman að stækka það upp og betrekkja undirgöngin með því,“ segir Harrý Jóhannsson, listamaðurinn á bak við hressilega veggskreytingu á undirgöng í miðbænum við Laugaveg 34 þar sem notast er við aldagamalt skoskt vefnaðarmunstur. Verkið vann hann fyrir Verslun Guðsteins nú í haust en hann er einnig höfundurinn að baki bindishnúta-leiðbeiningunum á gafli hússins sem löngu eru orðnar rótgrónar í hugum vegfarenda um Laugaveginn. Svo rótgrónar að mörgum finnst eins og þær séu jafngamlar húsinu. „Ég lenti meira að segja í hálfgerðu rifrildi við mann, eldri en ég, sem stóð á því fastar en fótunum að myndirnar hefðu verið þarna frá því hann var pjakkur. Ég tek því sem svo að þær hafi tekist vel,“ segir Harrý hlæjandi. „Sá veggur var skotmark veggjakrotara og ég gerði myndirnar fyrir Svövu í Guðsteini, eftir að hafa fylgst með henni mála vegginn aftur og aftur, dag eftir dag. Hann hefur fengið að vera nokkurn veginn í friði síðan,“ segir hann. Hundstannarmunstrið í göngunum er í vinnslu segir Harrý og verður klárað í vor. Litina í munstrið valdi hann út frá litum hússins og notaði pensil í stað úðabrúsa. „Ég ákvað að mála munstrið á veggina en ekki spreyja, þannig verður það frekar partur af húsinu með tímanum, finnst mér,“ segir hann og er nokkuð ánægður með útkomuna. „Ég hafði mjög gaman af þessu. Það er líka svo frábært að þessi næstum hundrað ára gamla búð á Laugaveginum standi fyrir svona skemmtilegheitum í miðbænum.“
Mest lesið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Í fyrsta sinn utan Úkraínu Menning Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Fleiri fréttir „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Sjá meira