Björk og Megas höfð í öndvegi Gunnar Leó Pálsson skrifar 23. október 2013 10:00 Jón Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags tónskálda og textahöfunda, býður upp á flotta tónleikaröð í Hörpu. fréttablaðið/daníel „
Við erum að fagna mjög góðu ári hjá okkur með magnaðri tónleikaröð sem ber nafnið Ammæli,“ segir Jón Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags tónskálda og textahöfunda, en félagið stendur fyrir tónleikaröð næstu helgi í Hörpu, í tilefni af þrjátíu ára afmæli sínu. Tónleikaveislan stendur frá föstudegi til sunnudagskvölds, en þar verður farið um víðan völl. „Á föstudagskvöldið kemur Stórsveit Reykjavíkur fram og flytur tónlist eftir meðlimi félagsins, eins og Eyþór Gunnarsson og Einar Scheving svo einhverjir séu nefndir,“ segir Jón. Á laugardagskvöldið flytja fimmtán íslensk tónskáld og textahöfundar tónlist sína. Á meðal þeirra sem koma fram þá eru Pétur Ben, Sóley Stefánsdóttir, Þórunn Antonía og Elín Ey, ásamt fleirum. „Á sunnudeginum verðum við með málþing um íslenska textagerð, sem stýrt verður af Katrínu Jakobsdóttur og Bjarka Karlssyni. Tónleikarnir á sunnudagskvöldið verða svo lokapunktur hátíðarinnar,“ bætir Jón við. Að kvöldi sunnudags fara þriðju og síðustu tónleikarnir fram og verða lög og textar eftir Björk Guðmundsdóttur og Megas í öndvegi. Meðal flytjenda eru Ragnheiður Gröndal, Magga Stína og Björn Jörundur, ásamt fleiri listamönnum. „Stelpurnar syngja lög Megasar og strákarnir syngja lög Bjarkar,“ bætir Jón við að lokum. FTT er félag sem berst fyrir réttindum hryntónlistarmanna og leggur metnað í að sinna félagsmönnum og efla íslenskt tónlistarlíf.
Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Fleiri fréttir Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Sjá meira