Nýr stjórnarformaður ÍLS situr í afskriftahópi Haraldur Guðmundsson skrifar 2. október 2013 07:00 Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra skipaði stjórn Íbúðalánasjóðs í síðustu viku. Stjórnarformaðurinn, Ingibjörg Ólöf, hefur setið í sérfræðingahópi sem á að vinna að lækkun á höfuðstóli verðtryggðra húsnæðislána frá því um miðjan ágúst. Fréttablaðið/GVA
Nýr stjórnarformaður Íbúðalánasjóðs, Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir, situr einnig í sérfræðingahópi forsætisráðuneytisins sem á að vinna að leiðum til að lækka höfuðstól verðtryggðra húsnæðislána. Vinna hópsins á að öllum líkindum eftir að hafa áhrif á framtíðarrekstur Íbúðalánasjóðs, stærsta lánveitanda húsnæðislána á landinu. Spurð hvort þessi tvö verkefni geti farið saman segir Ingibjörg Ólöf að starf hennar í sérfræðingahópnum eigi ekki að hafa áhrif á starf hennar sem stjórnarformaður Íbúðalánasjóðs og öfugt.Sigríður Ingibjörg IngadóttirSigríður Ingibjörg Ingadóttir, alþingismaður og formaður velferðarnefndar Alþingis, er ósammála þessu og segir málið hljóta að leiða til hagsmunaárekstra. „Þetta er óheppilegt því stjórnarformaður Íbúðalánasjóðs á að gæta hagsmuna sjóðsins en hlutverk sérfræðingahópsins er að leita leiða til að skrifa niður lán, þar á meðal lán Íbúðalánasjóðs. Sú spurning hlýtur því að vakna hvort viðkomandi aðili sé í nefnd ráðherra að vinna að hagsmunum skuldugra heimila eða sjóðsins,“ segir Sigríður. Ingibjörg Ólöf segir að hún hafi ekki íhugað að segja sig frá öðru hvoru verkefninu. „Við verðum að átta okkur á því að landið er lítið og það eru miklir hagsmunaárekstrar úti um allt en þrátt fyrir það verðum við í sérfræðingahópnum að gæta að almennum innherja- og hæfisreglum. Skuldalækkunin varðar allar fjármálastofnanir í landinu og það hafa fleiri en Íbúðalánasjóður veitt húsnæðislán,“ segir Ingibjörg. Hún bætir því við að ef hæfisreglur vegna sérfræðingahópsins eigi að vera túlkaðar á þann veg að stjórnarformaður Íbúðalánasjóðs geti ekki setið í hópnum geti enginn sem tengist fjármálageiranum setið í honum.Eygló HarðardóttirEygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, sem skipaði stjórn Íbúðalánasjóðs í síðustu viku, sagði í skriflegu svari til Fréttablaðsins að hún teldi skipun Ingibjargar til stjórnarformanns ekki fela í sér hagsmunaárekstur vegna starfa hennar í sérfræðingahópnum. Ráðherra sagði að hún: „treysti Ingibjörgu fullkomlega til að sinna störfum sínum af trúfestu og heilindum.“
Mest lesið Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Viðskipti innlent Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Slæm vinnustaðamenning: Minni afköst, verri frammistaða, fleiri fjarvistir Atvinnulíf Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Viðskipti innlent Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Viðskipti innlent Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Viðskipti innlent Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Viðskipti innlent Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Eyþór hættur sem framkvæmdastjóri Hopp Svona munu stækkuð Skógarböð og hótel líta út Sjá meira