Björgólfur tapaði 150 milljörðum milli ára Árni Sæberg skrifar 2. apríl 2025 14:02 Björgólfur Thor og eiginkona hans, Kristín Ólafsdóttir. Með þeim er Andri Sveinsson, viðskiptafélagi Björgólfs til margra ára. Vísir/Vilhelm Viðskiptamiðillinn Forbes metur auðæfi Björgólfs Thors Björgólfssonar, ríkasta Íslendingsins, á einn milljarð Bandaríkjadollara. Það gerir um 133 milljarða króna. Í fyrra var hann metinn á rúmlega tvöfalt meira, 280 milljarða króna. Þetta kemur fram á lista Forbes yfir þá einstaklinga sem eiga meira en einn milljarð Bandaríkjadala. Björgólfur Thor var fyrsti Íslendingurinn til þess að komast á listann og hefur verið sá eini þar frá árinu 2023, eftir að Davíð Helgason datt út af listanum. Fimmtán eiga meira en hundrað milljarða dala Björgólfur Thor er í ár númer 2.933 á lista yfir ríkasta fólk í heiminum. Sá sem trónir á toppnum og ber höfuð og herðar yfir aðra er hinn umdeildi Elon Musk. Auðæfi hans eru nú metin á 342 milljarða dollara, eða um 45,6 billjónir króna, sem má einnig rita svona: 45.592.020.000.000 krónur. Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook og næstríkasti maður í heimi, er sagður eiga 216 milljarða dala. Hér að neðan má sjá lista yfir 15 ríkustu menn í heimi en það eru einmitt allir sem eiga meira en eitt hundrað milljarða dollara. Athygli vekur að meðal þeirra er aðeins ein kona, Alice Walton, sem er einn erfingja Walmart-veldisins. Fimmtán ríkustu einstaklingar í heimi, í dollurum talið Elon Musk, 342 milljarðar Mark Zuckerberg, 216 milljarðar Jeff Bezos, 215 milljarðar Larry Ellison, 192 milljarðar Bernard Arnault og fjölskylda, 178 milljarðar Warren Buffet, 154 milljarðar Larry Page, 144 milljarðar Sergey Brin, 138 milljarðar Armancio Orteg 124 milljarðar Steve Ballmer, 118 milljarðar Rob Walton og fjölskylda, 110 milljarðar Jim Walton og fjölskylda, 109 milljarðar Bill Gates, 108 milljarðar Micheal Bloomberg, 105 milljarðar Alice Walton, 101 milljarður Lyfjafyrirtæki og fjarskiptafélag í vanda Á vef Forbes eru helstu eignir Björgólfs Thors sagðar svissneska lyfjafyrirtækið Xantis og síleska fjarskiptafélagið WOM. Hið síðarnefnda hefur verið í miklum ólgusjó undanfarin tvö ár og sótti til að mynda um greiðslustöðvun í fyrra. Þá er auður hans einnig sagður falinn í rafmyntum og nýsköpunarfyrirtækjum á borð við Zwift, Deliveroo og Stripe. Íslendingar erlendis Tengdar fréttir Björgólfur á lista Forbes Allt stefnir í að Björgólfur Thor Björgólfsson verði fyrstur Íslendinga til að komast á lista tímaritsins Forbes yfir ríkasta fólks heims. Luisa Kroll, ritstjóri lista Forbes, er stödd hér á landi til þess að meta eignir Björgólfs Thors og hvort hann nái inn á lista yfir ríkustu einstaklinga í heimi. 18. janúar 2005 00:01 Björgólfur Thor og félagar verða stærstu eigendur Heima Gengið hefur verið frá samkomulagi um helstu skilmála um kaup Heima á öllu hlutafé Grósku ehf.og Gróðurhússins ehf.. Gróska ehf. á fasteignina Grósku að Bjargargötu 1, 102 Reykjavík. Heildarvirði viðskiptanna er metið á 13,85 milljarða króna. Birgir Már Ragnarsson, Björgólfur Thor Björgólfsson og Andri Sveinsson verða stærstu eigendur Heima eftir viðskiptin. 6. febrúar 2025 16:29 Mest lesið Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Sjá meira
Þetta kemur fram á lista Forbes yfir þá einstaklinga sem eiga meira en einn milljarð Bandaríkjadala. Björgólfur Thor var fyrsti Íslendingurinn til þess að komast á listann og hefur verið sá eini þar frá árinu 2023, eftir að Davíð Helgason datt út af listanum. Fimmtán eiga meira en hundrað milljarða dala Björgólfur Thor er í ár númer 2.933 á lista yfir ríkasta fólk í heiminum. Sá sem trónir á toppnum og ber höfuð og herðar yfir aðra er hinn umdeildi Elon Musk. Auðæfi hans eru nú metin á 342 milljarða dollara, eða um 45,6 billjónir króna, sem má einnig rita svona: 45.592.020.000.000 krónur. Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook og næstríkasti maður í heimi, er sagður eiga 216 milljarða dala. Hér að neðan má sjá lista yfir 15 ríkustu menn í heimi en það eru einmitt allir sem eiga meira en eitt hundrað milljarða dollara. Athygli vekur að meðal þeirra er aðeins ein kona, Alice Walton, sem er einn erfingja Walmart-veldisins. Fimmtán ríkustu einstaklingar í heimi, í dollurum talið Elon Musk, 342 milljarðar Mark Zuckerberg, 216 milljarðar Jeff Bezos, 215 milljarðar Larry Ellison, 192 milljarðar Bernard Arnault og fjölskylda, 178 milljarðar Warren Buffet, 154 milljarðar Larry Page, 144 milljarðar Sergey Brin, 138 milljarðar Armancio Orteg 124 milljarðar Steve Ballmer, 118 milljarðar Rob Walton og fjölskylda, 110 milljarðar Jim Walton og fjölskylda, 109 milljarðar Bill Gates, 108 milljarðar Micheal Bloomberg, 105 milljarðar Alice Walton, 101 milljarður Lyfjafyrirtæki og fjarskiptafélag í vanda Á vef Forbes eru helstu eignir Björgólfs Thors sagðar svissneska lyfjafyrirtækið Xantis og síleska fjarskiptafélagið WOM. Hið síðarnefnda hefur verið í miklum ólgusjó undanfarin tvö ár og sótti til að mynda um greiðslustöðvun í fyrra. Þá er auður hans einnig sagður falinn í rafmyntum og nýsköpunarfyrirtækjum á borð við Zwift, Deliveroo og Stripe.
Fimmtán ríkustu einstaklingar í heimi, í dollurum talið Elon Musk, 342 milljarðar Mark Zuckerberg, 216 milljarðar Jeff Bezos, 215 milljarðar Larry Ellison, 192 milljarðar Bernard Arnault og fjölskylda, 178 milljarðar Warren Buffet, 154 milljarðar Larry Page, 144 milljarðar Sergey Brin, 138 milljarðar Armancio Orteg 124 milljarðar Steve Ballmer, 118 milljarðar Rob Walton og fjölskylda, 110 milljarðar Jim Walton og fjölskylda, 109 milljarðar Bill Gates, 108 milljarðar Micheal Bloomberg, 105 milljarðar Alice Walton, 101 milljarður
Íslendingar erlendis Tengdar fréttir Björgólfur á lista Forbes Allt stefnir í að Björgólfur Thor Björgólfsson verði fyrstur Íslendinga til að komast á lista tímaritsins Forbes yfir ríkasta fólks heims. Luisa Kroll, ritstjóri lista Forbes, er stödd hér á landi til þess að meta eignir Björgólfs Thors og hvort hann nái inn á lista yfir ríkustu einstaklinga í heimi. 18. janúar 2005 00:01 Björgólfur Thor og félagar verða stærstu eigendur Heima Gengið hefur verið frá samkomulagi um helstu skilmála um kaup Heima á öllu hlutafé Grósku ehf.og Gróðurhússins ehf.. Gróska ehf. á fasteignina Grósku að Bjargargötu 1, 102 Reykjavík. Heildarvirði viðskiptanna er metið á 13,85 milljarða króna. Birgir Már Ragnarsson, Björgólfur Thor Björgólfsson og Andri Sveinsson verða stærstu eigendur Heima eftir viðskiptin. 6. febrúar 2025 16:29 Mest lesið Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Sjá meira
Björgólfur á lista Forbes Allt stefnir í að Björgólfur Thor Björgólfsson verði fyrstur Íslendinga til að komast á lista tímaritsins Forbes yfir ríkasta fólks heims. Luisa Kroll, ritstjóri lista Forbes, er stödd hér á landi til þess að meta eignir Björgólfs Thors og hvort hann nái inn á lista yfir ríkustu einstaklinga í heimi. 18. janúar 2005 00:01
Björgólfur Thor og félagar verða stærstu eigendur Heima Gengið hefur verið frá samkomulagi um helstu skilmála um kaup Heima á öllu hlutafé Grósku ehf.og Gróðurhússins ehf.. Gróska ehf. á fasteignina Grósku að Bjargargötu 1, 102 Reykjavík. Heildarvirði viðskiptanna er metið á 13,85 milljarða króna. Birgir Már Ragnarsson, Björgólfur Thor Björgólfsson og Andri Sveinsson verða stærstu eigendur Heima eftir viðskiptin. 6. febrúar 2025 16:29