Innlent

800 manna tónleikasalur á Brynjureit

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Einari Erni Benediktssyni líst vel á hugmyndir Friðjóns Friðjónssonar og hans manna í félaginu Þingvangi um byggingu á Brynjureit.
Einari Erni Benediktssyni líst vel á hugmyndir Friðjóns Friðjónssonar og hans manna í félaginu Þingvangi um byggingu á Brynjureit. Fréttablaðið/GVA
Félagið Þingvangur, sem keypti Hljómalindarreit og Brynjureit í sumar, hefur í hyggju að byggja á Brynjureitnum svokallað Félagsheimili Reykjavíkurborgar.

Byggingin yrði fjösóttur samkomustaður, með veitingahúsi, skrifstofum og 800 manna tónleikasal sem hægt væri að minnka í hentugri stærð ef svo bæri við. Að auki vill Þingvangur byggja litlar íbúðir, 30-40 fermetra að stærð, fyrir ofan. Þó yrði að koma til breyting á byggingarreglugerð til þess að þetta gæti orðið að veruleika. Eins og reglugerðin er núna má aðeins byggja íbúðir í undir 50 fermetra stærð fyrir námsmenn.

„Þetta er algjörlega á hugmyndastigi,“ sagði Friðjón Friðjónsson, talsmaður Þingvangs, þegar Fréttablaðið náði af honum tali. „Ef þetta á að verða að veruleika þá verður borgin að koma með í verkefnið. Einhver starfsemi gæti orðið þarna, til dæmis frá Hinu húsinu.“ Friðjón segir tónleikasal sem þann sem talað er um í tillögunum nákvæmlega það sem vantar í miðbæinn. „Þetta er stærðin sem vantar fyrir tónleikahald.“

Þingvangur kynnti hugmyndirnar á fundi með pólitískri yfirstjórn skipulagsmála í síðustu viku. Viðbrögðin voru mjög jákvæð að sögn Friðjóns.

Þingvangur sýnir verkefnið í dag í Ráðhúsi Reykjavíkur á sýningu um uppbyggingu í Reykjavík. Félagið gerir ráð fyrir að uppbyggingu á Brynjureitnum verði lokið síðla árs 2015. „Þetta er það sem við myndum vilja gera til að gera borgina skemmtilegri og flottari.“

Einar Örn Benediktsson tekur undir þessi orð.

„Ég held það sé mjög fín þörf fyrir tónleikastað eða rokkstað. Nasa hefur lokað, Faktorí hefur lokað og þessi staður getur verið 200-800 manna staður þannig að þetta er hið besta mál," segir Einar Örn. 

Uppfært: Ranghermt var í fyrri útgáfu þessarar fréttar að um Hljómalindarreitinn væri að ræða. Það hefur verið leiðrétt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×