Fimm mánaða frumburðurinn með í tökur Sara McMahon skrifar 30. september 2013 07:00 Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir stýrir þættinum Á fullu gazi með Finni Thorlacius. Fréttablaðið/Daníel Rúnarsson „
Ég hrífst af öllu sem kemur blóðinu á hreyfingu og er með mótor,“ segir fjölmiðlakonan Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir sem kemur til með að stýra sjónvarpsþáttunum Á fullu gazi ásamt Finni Thorlacius. Þættirnir hefja göngu sína í nóvember og eru í anda Top Gear. Að sögn Sigríðar Elvu eiga þættirnir að höfða jafnt til þeirra sem eru með króníska bíladellu og hinna er vilja aðeins gott sjónvarpsefni. „Finnur, sem er maðurinn með sérfræðiþekkinguna, hafði gengið með hugmyndina í nokkurn tíma. Yfirmenn mína á Stöð 2 rámaði eitthvað í að ég væri með tækjadellu og því var ég fengin sem meðstjórnandi,“ segir hún. Sigríður Elva eignaðist sitt fyrsta barn í apríl og tekur þættina upp í miðju fæðingarorlofi. „Dóttirin mætir með í smink og myndatökur og verður líklega á hliðarlínunni á meðan á tökum stendur, enda er hún enn á brjósti og því ekki hægt að skilja hana eftir heima. Tökur hefjast eftir tvær vikur og ég hlakka til að komast aðeins af heimilinu og leika mér að tryllitækjum eftir fimm mánuði í brjóstaþoku,“ segir hún og hlær.Ekur um á yfirbyggðri slátturvél Aðspurð kveðst Sigríður Elva ekki keyra um á glæsikerru, þótt hana dreymi um að eignast slíka. „Ég keyri um á sjö ára gömlum Toyota Aygo sem er með vél á við garðsláttuvél. Ég átti áður Hondu CRX á „low profile-dekkjum“ og með tvöfalt púst sem vakti öfund flestra unglingspilta. Því miður varð ég að skipta á þeim bíl og yfirbyggðu sláttuvélinni.“ Spurð út í draumabílinn segir hún að hana langi helst að eignast stökkbreyttan ofurjeppa. „Svo ég gæti farið um hálendið. Mig hefur reyndar líka alltaf dreymt um að eignast skriðdreka, en það væru ópraktísk kaup þegar maður býr á Laugaveginum.“ Post by Lífið á Visir.is.
Mest lesið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Í fyrsta sinn utan Úkraínu Menning Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Fleiri fréttir „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Sjá meira