Fjöldi á starfakynningu Norðmanna Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 20. september 2013 07:00 Stöðugur straumur fólks var á starfakynningu Norðmanna á Grand Hóteli í gær. „
Það er stöðug eftirspurn í Noregi eftir fólki með sérfræðikunnáttu í öllum geirum atvinnulífsins. Við höfum hins vegar nóg af ófaglærðum starfskrafti. Margt ungt fólk sem hefur flosnað upp úr námi vantar vinnu og einnig ófaglærða útlendinga sem búsettir eru í Noregi,“ sagði Hallgeir Jenssen, fulltrúi norsku Vinnumálastofnunarinnar og EURES-samstarfsins, við Fréttablaðið á starfakynningu á Grand Hóteli í Reykjavík í gær. Þar kynntu EURES, samstarf um vinnumiðlun á evrópska efnahagssvæðinu, og norsk fyrirtæki starfsmöguleika í Noregi. Leitað er meðal annars að iðnaðarmönnum, heilbrigðisstarfsfólki, verkfræðingum og starfsmönnum úr veitingageiranum og sjávarútvegi.Hallgeir JenssenNorðmenn eru ánægðir með vinnusiðferði Íslendinga og meðal annars þess vegna hafi norsk fyrirtæki áhuga á að fá Íslendinga í vinnu, að sögn Jenssen. „Það er margt líkt með íslensku og norsku samfélagi. Íslendingar skilja að þeir verða að láta til sín taka og að menn geti ekki vænst þess að samfélagið geri allt fyrir þá,“ sagði hann. Þröng var á þingi á kynningunni í gær og biðu menn í röðum eftir því að fá að ræða við fulltrúa þeirra níu fyrirtækja og vinnumiðlana sem voru á staðnum. Sumir Íslendinganna, sem voru á öllum aldri, virtust eftirvæntingarfullir en aðrir frekar þungir á brún. Starfakynningin í gær var sú sjöunda sem EURES hefur staðið fyrir hér á landi, að sögn Jenssen. „Það hafa komið um 300 manns á hverja af þessum stuttu kynningum hjá okkur,“ greindi hann frá en kynningin í gær stóð yfir í sex klukkustundir. Í fyrra fluttu 1.395 íslenskir ríkisborgarar til Noregs en 1.539 árið 2011.Albert ÍsleifssonFramtíðin er ekki björt á Íslandi Albert Ísleifsson, sem er 21 árs, missti vinnuna í þessari viku og dreif sig þess vegna á starfakynningu Norðmanna. „Það er ekki björt framtíð hér. Ég er kominn á götuna.“ Albert hefur starfað við hellulagningar frá því að hann var 14 ára og vonast til þess að fá starf í Noregi. „Þeir eru að auglýsa eftir hellulagningarmönnum,“ segir hann.Jórunn Sóley BjörnsdóttirÆtlar að flytja til að fá betri laun Jórunn Sóley Björnsdóttir sjúkraliði stefnir að því að flytja til Noregs og starfa þar við sitt fag. Hún var á meðal fjölmargra heilbrigðisstarfsmanna sem sóttu kynningu norskra vinnumiðlana og fyrirtækja á Grand Hóteli í Reykjavík í gær. „Ég sækist eftir betri launum. Þar er líka hugsað betur um starfsmenn. En ég er að vísu sátt á hjúkrunarheimilinu Sóltúni þar sem ég vinn.“ Jórunn Sóley gæti hugsað sér að búa og starfa í Álasundi. „Pabbi minn býr þar. Hann er rafvirki og flutti til Noregs vegna betri kjara.“Andri FriðjónssonSkoðar kjör og atvinnumöguleika Andri Friðjónsson, varaformaður ungliðadeildar Sjúkraliðafélags Íslands, fór á starfakynningu Norðmanna til þess að kynna sér atvinnumöguleika og kjör. „Ég hef heyrt að norska ríkið greiði sjúkraliðum tvöfalt hærri laun en íslenska ríkið og að einkageirinn í Noregi borgi tvöfalt hærri laun en norska ríkið.“ Andri, sem er á námskeiði hjá Endurmenntunarstofnun í hagnýtri norsku fyrir heilbrigðisstarfsmenn, getur hugsað sér að búa hvar sem er í Noregi fyrst um sinn. „Seinna myndi ég vilja vera nálægt Haugesund þar sem systir mín býr. Hún elti ástina þangað.“
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira