Halda Dýrunum í Hálsaskógi Garðar Örn Úlfarsson skrifar 28. ágúst 2013 08:00 Íslensk börn á öllum aldri þekkja útgáfu SG-hljómplatna á Dýrunum í Hálsaskógi.
Ekkert verður af dómsmáli sem Þjóðleikhúsið höfðaði gegn Senu vegna ágreinings um útgáfurétt að 46 ára upptöku Ríkisútvarpsins á Dýrunum í Hálsaskógi. Sátt náðist er frumskjöl fundust komu í leitirnar. Sena heldur útgáfuréttinum áfram. Þjóðleikhúsið og Sena hafa náð sátt um útgáfurétt að upptöku Ríkisútvarpsins frá 1967 á Dýrunum á Hálsaskógi. Um er að ræða hljóðupptöku með Bessa Bjarnasyni, Árna Tryggvasyni og fleiri leikurum Þjóðleikhússins. Þessa útgáfu kannast margar kynslóðir Íslendinga mæta vel við. Verkið var upphaflega gefið út af SG-hljómplötum sem þegar fram liðu stundir runnu inn í Senu. Þjóðleikhúsið taldi Senu ekki eiga höfundaréttinn að upptökunum og stefndi fyrirtækinu fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur þar sem taka átti málið fyrir á morgun. Ekkert verður þó úr dómsmálinu. „Það var um tíma uppi óvissa og ágreiningur um það hvort Sena hefði útgáfuréttinn,“ segir Gunnlaugur Úlfsson, lögmaður Senu. „Málið reyndist hins vegar á misskilningi byggt og það er verið að ganga frá smáatriðunum í samkomulagi á milli aðila.“ Gunnlaugur segir niðurstöðuna vera þá að Sena hafi útgáfuréttinn. „Það er hins vegar gert samkomulag sem er trúnaðarmál milli aðila. Það felur ekki í sér neinar sérstakar greiðslur út af þessu máli.“ Útgáfurréttur SG-Hljómplatna á Dýrunum í Hálsaskógi hefur að sögn Gunnlaugs gengið kaupum og sölum þar til hann endaði hjá Senu. Upptakan er með leikurum úr Þjóðleikhúsinu.Ari Matthíasson, framkvæmdastjóri Þjóðleikhússins segir ekkert um deiluna við Senu að segja úr því að samkomulag hafi verið gert. „Þjóðleikhúsið sem hefur sýningarréttinn að verkinu vildi kannski fá á hreint hvort Sena hefði þennan rétt. Eftir að málið var höfðað fór í gang vinna við að leita að öllum frumsamningum og -skjölum og þau komu í leitirnar. Þannig að þetta er allt komið á hreint,“ segir útskýrir Gunnlaugur. „Þetta var bara rifrildi sem er búið,“ segir Ari Matthíasson, framkvæmdastjóri Þjóðleikhússins, aðspurður um deiluna. Ekkert sé því frekar um málið að segja. Dýrin í Hálsaskógi eftir Thorbjörn Egner voru frumflutt á Íslandi. Það gerði einmitt Þjóðleikhúsið árið 1962. Um þessar mundir er fimmta uppfærslan af verkinu á sviði leikhússins.
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira