Vantar vinnandi hendur á Hólmavík Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 23. ágúst 2013 09:15 Íbúum Hólmavíkur hefur fjölgað um tæplega þrjá tugi á síðustu þremur árum. Það eru ekki margir þéttbýliskjarnar á Vestfjörðum um þessar mundir sem þekkja vandann sem fylgir slíkri þróun.
Verið er að auglýsa eftir fólki í ýmis störf á Hólmavík. Þar er þjónustustig hátt miðað við önnur sveitarfélög af svipaðri stærð. Það ásamt því hvernig Strandamenn hafa getað nýtt sér tækifærin varðandi sjósókn veldur íbúafjölguninni. Skortur er á húsnæði í Hólmavík og þar vantar einnig fólk til vinnu að sögn Andreu Kristínar Jónsdóttur, sveitarstjóra Strandabyggðar. Nýlega var byggt þriggja íbúða raðhús en eftirspurnin er mun meiri en svo að það hafi bjargað. „Það vantar aðallega íbúðir fyrir ungt fólk,“ segir Andrea Kristín. „Þannig að fólk geti flutt að heiman frá foreldrum sínum og eins fyrir unga fólkið sem er kannski að koma heim úr námi.“ Aðspurð um þennan lúxusvanda segir Andrea að Strandamenn hafi verið duglegir við að nýta sér tækifærin í sjávarútvegi eins og til dæmis með strandveiðum, grásleppu- og makrílveiðum. Þar sé einnig þjónustustigið hátt miðað við mörg önnur sveitarfélög. Þar er til dæmis pósthús og tvö bankaútibú og mikil starfsemi í Þróunarsetrinu sem þar er til húsa. Einnig eru Vegagerðin, Orkubú Vestfjarða og Heilbrigðisstofnun Vesturlands með starfsemi í sveitarfélaginu.Auglýst eftir fólki Enn fremur segir Andrea að verið sé að auglýsa eftir fólki til vinnu. „Við erum náttúrulega að manna leikskólann hérna, Sorpsamlag Strandasýslu er að auglýsa eftir starfsmanni í fullt starf, ég veit að kaupfélagið hefur verið að leita að starfsfólki og eins veitingastaðurinn hérna hjá okkur og svo erum við að óska eftir starfsfólki á Héraðsbókasafnið. Þannig að það eru næg atvinnutækifæri hérna og hér er ekki atvinnuleysi.“ Andrea fagnar því einnig að næsta vetur geti nemendur stundað framhaldsskólanám í svokölluðu dreifnámi, sem þýðir að nemendur á fyrstu tveimur árunum í framhaldsskóla þurfa ekki að leggja land undir fót. Andrea segir muna mikið um þetta því næsti framhaldsskóli sé í Borgarnesi. Það er ekki nóg með að ásókn sé meðal manna en mikill fjöldi hvala af ýmsum stærðum og gerðum hefur verið á svamli úti fyrir Ströndum. „Ég sé þetta út um gluggann svo maður byrjar daginn á því að heilsa hvölunum.“
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira