Heimilisgæsin fer í hundabúri í verslunarferðir Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 19. ágúst 2013 07:00 Særún Birta (10 ára), Birgir Logi (7 ára) og Jóhanna María (3 ára) Birgisbörn hafa hlúð vel að Bíbí. Gísladóttir Mynd/Kristín Ingunn
Það fjölgaði óvænt í fjölskyldu nokkurri í Reykjanesbæ eftir að hún fór að tína mávaegg snemmsumars úti í Gróf, sem er rétt ofan við smábátahöfnina þar í bæ. Elsta dóttirin, Særún Birta, tók gæsaregg án þess að átta sig á hvers kyns var. Þegar það varð ljóst stakk fjölskyldufaðirinn upp á því að þau reyndu að láta það klekjast út heima úr því sem komið var. Það varð úr og í sumar hefur gæsin Bíbí elt fjölskylduna á röndum. „Þetta hefur verið mikið umstang en gæsaungar eru þannig að þeir geta ekki verið einir enda var Bíbí orðin mjög hvekkt þegar við skildum hana eina eftir í hálftíma eitt sinn,“ útskýrir Kristín Ingunn Gísladóttir. Húsbóndinn, Birgir Haukdal Rúnarsson, segir að fjölskyldan hafi verið á vöktum í sumar af þessum völdum. „En ég hef ekki þurft að slá blettinn,“ segir hann kankvís. Í verslunarferðum Bíbíar notar fjölskyldan hundabúr sem gæsin unir sér ágætlega í. Kristín segir að Bíbí sé eins og ein af fjölskyldunni en þó vonast hún til að gæsin hefji sig á loft með sínum líkum í haust og fari á vetrarstöðvar. „Reynslan hefur sýnt það að tamdar gæsir geta bjargað sér í villtri náttúrunni og jafnvel gleymt eftir árið öllu sem þeim var kennt.“ Farið hefur verið með Bíbí til að sjá sína líka en henni brá við þau ósköp. „Svo höfum við sett spegil hjá henni á svölunum svo að hún sjái sjálfa sig en við erum hálf smeyk við að leiða hana til annarra gæsa því það er margt um varginn hérna.“ Það er nokkur kúnst að skapa réttu aðstæðurnar fyrir gæsaregg til að klekjast. Þá kom sér vel baðskápur þeirra hjóna en hann er með hitagrind og því hlýr og góður. „Reyndar var ekki nógu mikill raki svo eggið var þurrt og hart og við heyrðum í Bíbí inni í egginu og urðum að hjálpa henni við að opna það.“ Ekki tók betra við því næst varð að gefa henni vökva úr teskeið en svo komst fuglinn fljótt á legg. „Ég er í raun alveg á móti því að grípa svona inn í hjá náttúrunni,“ segir Kristín Ingunn. „En fyrst þetta þróaðist svona þá var ekkert annað að gera en að vinna úr því af alúð.“
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira