Innlent

Segir pólitískar skoðanir hafa ráðið för við skipun í nýja sérfræðingahópa

Lovísa Eiríksdóttir skrifar
Formenn stærstu stjórnarandstöðuflokkana gagnrýna að ekki hafi verið haft samráð við stjórnarandstöðu né háskólasamfélag við skipun í nýja sérfræðihópa.
Formenn stærstu stjórnarandstöðuflokkana gagnrýna að ekki hafi verið haft samráð við stjórnarandstöðu né háskólasamfélag við skipun í nýja sérfræðihópa.
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, er harðorður í garð nýrra sérfræðingahópa sem skipaðir voru af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra í gær.

Á Facebook-síðu sinni, segir Árni Páll meðal annars, að sumir nefndarmannanna virðist sérvaldir í hópinn vegna skoðana sinna frekar en sérfræðiþekkingar. „Slíkt kann ekki góðri lukku að stýra, ef ætlunin er að skoða mál með opnum huga.“

Árni Páll vekur athygli á því að ríkisstjórnarflokkarnir hafi skipað sérfræðihópa án aðkomu háskólasamfélagsins, vinnumarkaðar og stjórnarandstöðuflokka, en hafi þó sjálfir gagnrýnt fyrri stjórnarflokka fyrir skort á samráði og virðingu fyrir háskólasamfélaginu.

Forsætisráðherra vongóður um raunhæfar tillögur

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra skipaði í gær fjórtán sérfræðinga í tvo hópa sem eiga að takast á við skuldavanda heimilanna. Annar hópurinn fær það verkefni að skila tillögum um mögulega höfuðstólsleiðréttingu á húsnæðislánum og fara yfir kosti og galla við að stofna svokallaðan leiðréttingarsjóð sem á að nýta í niðurfellingu lána. Hinn hópurinn á að fara yfir hvernig megi afnema verðtryggingu á neytendalánum.



Hóparnir eiga að skila af sér tillögum í nóvember og segist forsætisráðherra, í fréttum Stöðvar 2 í gær, vera vongóður um að raunhæfar tillögur fáist innan tólf vikna. 

„Undanfarnar vikur og mánuðir hafa verið nýttir til undirbúnings. Það liggja fyrir tugir blaðsíðna af útreikningum, gögnum og hugmyndum sem munu nýtast þessum hópum vel,“ segir Sigmundur, en þar er hann meðal annars að vitna í útreikninga Sigurðar Hannessonar, sem er formaður hóps um skuldaleiðréttingu.

Ingibjög Ingvadóttir, formaður sérfræðihóps um afnám verðtryggingar á neytendalánum.
Ingibjörg Ingvadóttir, formaður hóps um afnám verðtryggingar, er spennt fyrir að takast á við nýtt verkefni en segir jafnframt að viðfangsefnið sé stórt og flókið. „Hópurinn ætlar nú að einhenda sér í að vinna verkefnið rösklega og hella sér í það að afla sér frekari upplýsinga en einnig að fara yfir efni sem nú þegar er tilbúið.“



Katrínu Jakobsdóttur þykja vinnubrögðin miður

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, tekur undir með Árna Páli og þykir miður að ekki hafi verið haft samráð við stjórnarandstöðuflokkana við skipan í hópana. „Ég hefði viljað að það hefði verið haft samráð við alla flokka á þingi um val á einstaklingum, sem var búið að boða, til að mynda í stjórnarsáttmálanum.“

Sigurður Hannesson.
Sérfræðingar í hópunum

Sigurður Hannesson, formaður sérfræðihóps um skuldaleiðréttingu er doktor í stærðfræði frá Oxford-háskóla.

Hann er jafnframt vinur og ráðgjafi Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra og hefur komið að útreikningum um skuldaleiðréttingu heimilanna.

Aðrir í hópnum eru:

Dr. Arnar Bjarnason hagfræðingur

Einar Hugi Bjarnason, hæstaréttarlögmaður

Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttirm, héraðsdómslögmaður

Lilja Alfreðsdóttir, alþjóðahagfræðingur

Sigrún Ólafsdóttir, alþjóðaviðskiptafræðingur í forsætisráðuneytinu

Sigurður Guðmundsson skipulagsfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Ingibjörg Ingvadóttir, formaður hóps um afnám verðtrygginar, er héraðsdómslögmaður og lektor við Háskólann á Bifröst. Einnig situr hún í bankaráði Seðlabanka Íslands sem fulltrúi Framsóknarflokksins.

Aðrir hópnum eru:

Hafdís Ólafsdóttir lögfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Iða Brá Benediktsdóttir viðskiptafræðingur.

Sigrún Ólafsdóttir alþjóðaviðskiptafræðingur í forsætisráðuneytinu.

Tómas Brynjólfsson hagfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Valdimar Ármann hagfræðingur og fjármálaverkfræðingur.

Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×