Fólki sem þiggur sérstakar bætur hefur fjölgað mikið Lovísa Eiríksdóttir skrifar 8. ágúst 2013 23:15 Björk Vilhelmsdóttir.
Fólki sem þiggur sérstakar húsaleigubætur fer ört fjölgandi samkvæmt tölum frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Áætlaður meðalfjöldi þeirra sem fá sérstakar húsaleigubætur árið 2013 er tæplega 4.500 manns en árið 2009 voru bótaþegarnir rúmlega eitt þúsund. Skrifað var undir samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga í janúar 2008, þar sem sveitarfélögin voru hvött til þess að greiða viðbótarframlag til þeirra leigjenda sem búa við erfiðar félagslegar eða fjárhagslegar aðstæður. Samkomulagið kvað á um að ríkissjóður myndi greiða sextíu prósent af heildarkostnaði vegna hækkunar á bótum í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Sveitarfélögum ber ekki skylda til að greiða sérstakar húsaleigubætur. Um sextíu prósent sveitarfélaga bjóða til dæmis ekki upp á slíka þjónustu. Hins vegar búa um 83 prósent landsmanna í sveitarfélagi sem býður upp á greiðslur til sérstakra húsaleigubóta og munar þar mestu um Reykjavík og önnur fjölmenn sveitarfélög. Björk Vilhelmsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar, segir að fjölgunin komi sér ekki á óvart. „Sérstakar húsaleigubætur eru ætlaðar þeim sem eru verst settir á húsnæðismarkaði og sá hópur er alltaf að stækka,“ bendir Björk á og segir að fjölgunin endurspegli einungis þann vanda sem er í samfélaginu. Fjölgunin var mest milli áranna 2009 til 2010 og nam hún um 64 prósentum. Eftir það hefur bótaþegum fjölgað jafnt og þétt og nema áætlaðar raungreiðslur vegna bótanna árið 2013 rúmum 1,2 milljörðum króna samanborið við 353 milljarða króna árið 2009. Auk fjárhagslegra erfiðleika einstaklinga er ein af ástæðum fyrir þessari fjölgun meðal annars sú að sveitarfélögum sem greiða bæturnar hefur fjölgað mikið, úr 16 upp í 24 frá árinu 2009. „Þetta er mjög vaxandi útgjaldaliður hjá sveitarfélögunum. Það eru fleiri sem hafa þurft að leita til sveitarfélaganna til að þiggja sérstakar bætur. Mikið hefur verið um að fólk sé að missa rétt sinn til atvinnuleysisbóta og því leitar það til sveitarfélaganna,“ segir Kári Björnsson, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga. Kári bendir á að fólk þurfi að uppfylla ákveðin skilyrði til þess að öðlast réttindi til sérstakra húsaleigubóta. „Þetta er bara opinber stuðningur sem hinu opinbera ber að veita því fólki sem uppfyllir skilyrðin. Því fleiri sem uppfylla þau, því hærri verða útgjöldin,“ segir Kári.
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Konan sem var borin út er látin Erlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Fleiri fréttir Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Sjá meira