Óvissa um þróunarverkefni Þorgils Jónsson skrifar 9. ágúst 2013 07:00
Fjölmörg tilraunaverkefni um land allt eru í óvissu eða hafa jafnvel verið slegin út af borðinu með ákvörðun ESB um að veita ekki frekari IPA-styrki til verkefna hér á landi. Til stóð að veita allt að 3,5 milljarða til ýmissa verkefna í ár og á því næsta en Framkvæmdastjórn ESB tilkynnti stjórnvöldum að ekki yrði samið um fleiri IPA-verkefni að óbreyttu eftir að hlé var gert á aðildarumræðum, þar sem það sé í raun skilyrði fyrir aðstoð að viðtökulandið stefni að inngöngu í sambandið. Hluti af fyrirhugaðri IPA-aðstoð var að styðja við tilraunaverkefni á sviði atvinnuþróunar- og byggðamála annars vegar og velferðar- og vinnumarkaðsmála hins vegar. Alls átti að verja um átta milljónum evra til slíkra verkefna. Alls bárust 67 umsóknir og í vor var, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins, búið að velja þrettán verkefni sem átti að ganga til samninga við. Þar á meðal voru þrjú verkefni á vegum Matís sem áttu að fá um 1,5 milljónir evra, tvö verkefni frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands sem áttu að fá um 1,6 milljónir evra og verkefni sem Vinnumálastofnun stóð fyrir og átti að fá eina milljón. Næstu skref hefðu verið að ganga til samninga við Framkvæmdastjórn ESB um lokaútfærslu en það ferli hefur nú verið stöðvað. Í frétt blaðsins í gær var ranghermt að íslensk stjórnvöld væru að íhuga að fjármagna sum verkefnin sjálf. Utanríkisráðuneytið hefur staðfest að ekki hafi verið rætt um slíkt á vettvangi ríkisstjórnarinnar og öll verkefnin séu stopp. Margir viðmælendur Fréttablaðsins sem höfðu hlotið umrædd vilyrði segja bagalegt að svo sé komið, enda hafi verið lögð mikil vinna í umsóknirnar. Kristinn Kolbeinsson, fjármálastjóri Matís, segir meðal annars í samtali við Fréttablaðið að umsóknirnar hafi útheimt mikinn kostnað og bagalegt sé að málum sé nú svo komið. „Það eru miklir hagsmunir að fara þarna forgörðum. Við höfum eytt mikilli vinnu í þessar umsóknir og þetta getur haft mikil áhrif á okkar starfsemi.“ Flestir aðstandendur verkefna sögðu að erfitt gæti reynst að halda verkefnunum til streitu í ljósi þess að IPA-styrkirnir berist ekki en þó eru sumir sem líta þannig á að umsóknarferlið hafi í sjálfu sér skilað miklu. Katrín María Andrésdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, sem áttu aðild að tveimur verkefnum sem höfðu fengið vilyrði um styrk, segir að þar á bæ sé ekki litið á málið sem tapað fé. „Það er enginn hérna sem lítur á vinnuna við umsóknina eða hugsanlegan styrk sem einhvers konar tap heldur er þetta ferli sem við höfum lært af […].“
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Margaret Hamilton er látin Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Sjá meira